Forsætisráðuneyti

Valmynd.


Skrifstofan er flutt

Norðurlandaskrifstofa er frá og með 1. október 2009 með aðsetur í utanríkisráðuneytinu að Rauðarárstíg 25, sími: 545 9900, netfang: postur@utn.stjr.is.

Allar upplýsingar sem hér var að finna og varða norrænt samstarf eru komnar á vef utanríkisráðuneytisins

Athugið að þær upplýsingar sem eru hér geta verið úreltar og því rétt að kynna sér málið á vef utanríkisráðuneytisins.

Útgefið efni

19. Iðnaðar- og atvinnumál

Markmið og leiðir

Samstarfið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál byggir að nokkru á hefðbundnum viðfangsefnum og venjum en að öðru leyti á nýlundu og frumkvæði þeirra sem forystu hafa hverju sinni.

Eftir sem áður verður höfuðmarkmið samstarfsins að efla samkeppnishæfi atvinnulífsins á Norðurlöndum og búa þar með í haginn fyrir aukið bjargræði þegnanna og hagsæld.

Samstarfsaðilarnir eru Ráðherranefndin um iðnaðar- og atvinnumál (MR-N) og samnefnd embættismannanefnd (EK-N), svo og Velferðar- og atvinnumáladeild norrænu ráðherraskrifstofunnar í Kaupmannahöfn (NMRS), einnig starfshópar skipaðir til einstakra afmarkaðra ætlunarverka, enn fremur þar að lútandi stofnanir, sem eru Norræni iðnaðarsjóðurinn (NI) og Norræna prófanastofnunin (Nordtest).

Efni

Ráðstöfunarfé til hinna ýmsu ætlunarverka á vegum ráðherranefndarinnar (MR-N) ákvarðast af Norrænu samstarfsráðherranefndinni (MR-SAM) og nemur fjárveitingin á árinu 1999 1,4 millj. DKK. Að auki eru 600 þús. DKK ætlaðar til samstarfsverkefnis um upplýsingatækni í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Norðurlöndum.

Á döfinni

Þegar er hafinn undirbúningur og framkvæmd nokkurra verkefna, sem haldið verður áfram á hinu íslenska formennskuári. Má þar m.a. tilgreina viðfangsefni, er lúta að því að framfylgja niðurstöðum rannsóknar sem gerð var á sóknarfærum og samstarfsáformum um norræna nýsköpun; samstarf atvinnuþátta um umhverfisverndarstefnu í framleiðsluiðnaði; viðfangsefni á sviði upplýsingatækni og rafrænna viðskipta til bættrar samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Auk þess verður um áramótin hrundið af stað verkefni, sem kallast Norðurlöndin sem ein samkeppnishæf heild. Þá er að fara af stað tilraunaverkefni er tekur til rafrænna viðskipta með byggingarvörur.

Ráðagerð

Áhersluatriði á íslenska formannsárinu eru m.a. eftirfarandi:

  • Þörf er talin á nýrri og breiðari sýn á nýsköpunarferlið og hið norræna samstarf um nýsköpunarstefnu. Þar mætti taka mið af víðtækari skilgreiningum en þeim hefðbundnu, sem hingað til hafa að mestu snúist um rannsóknir og tækniþróun. Því er stefnt að því að glöggva og kveða sérstaklega á um almenna þróun atvinnulífsins, með tilliti til þess, að atriði svo sem aðgengi að fjármagni, opinber íhlutun, skipulagning og stjórnun hafi samverkandi áhrif á nýsköpun einstakra fyrirtækja. Þarna hlýtur að koma tilstilli og samræming hins pólitíska valds og stofnana þjóðfélagsins.
  • Annað brýnt mál er svokallað ,,benchmarking" eða samkeppnishæfi á Norðurlöndum. Á þeim vettvangi verða skilgreindar bæði hömlur og möguleikar, er forsvarsmenn fyrirtækja mæta við að skynja Norðurlöndin heildrænt í samkeppninni við umheiminn. Reynt verður að tilgreina svæði þar sem samnorrænt framtak í atvinnumálum getur bætt rekstrarskilyrði fyrirtækjanna. Verði þar horft til nýsköpunar, vinnumarkaðarins, menntunar o.s.frv.
  • Ætlunin er að menn beri saman bækur sínar um reynslu af gildandi lagasetningu, aðferðum og skorðum hvers konar. Með hliðsjón af því verði stefnt að nánara samráði þeirra aðila hins norræna samstarfs, er fara með stefnumörkun í atvinnumálum, vinnumálum og menntamálum.
  • Hugað verður að iðnhönnun sem sérlegu samstarfssviði á hinum norræna vettvangi.
  • Fyrirliggjandi er að Ráðherranefndin efli framtak, í tengslum við viðfangsefni og samstarfsverkefnin á hverjum tíma, sem gæti orðið til þess að bæta forsendur kvenna til atvinnusköpunar og atvinnurekstrar.
  • Sérstætt atvinnusköpunarverkefni, verði að leggja þróun ferðaiðnaðar lið á vestnorrænum slóðum sem og í norðurhéruðum Skandinavíu, með samverkan viðkomandi aðila á þessum svæðum. Í þessu tilliti verði lögð áhersla á þróun ferðaiðnaðar á norðlægum slóðum, þ.e. Grænlandi, Færeyjum og Íslandi sem og hinum samísku svæðum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Þannig bendir Alheimsferðamálaráðið sérstaklega á, að slík framandi og fáförul landssvæði hafi til að bera stórfellda möguleika til þróunar ferðamannaiðnaðarins sem og atvinnusköpunar og farsældar.

Grannsvæðin

Áframhald verður á samstarfinu við Eystrasaltsríkin til eflingar atvinnulífsins þar. Dæmi þar um mætti nefna verkefnið Nordpraktik. Með því er átt við áætlun sem gefur ungu fólki af grannsvæðunum í Eistlandi, Lettlandi, Litháen og af St. Pétursborgarsvæðinu í Rússlandi, kost á að ferðast um og kynnast starfs- og framleiðsluháttum, sem tíðkast í litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlöndum.

ESB/EES

Fylgst verður grannt með þeirri þróun innan vébanda Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins, sem kann að hafa hagnýtt gildi fyrir iðnþróun og atvinnulíf á Norðurlöndum.

Ennfremur verður eftir atvikum lögð áhersla á, að efla gagnkvæm tengsl ráðherranefndarinnar (MR-N) og embættismannanefndarinnar (EK-N) við norrænu sendinefndirnar og iðnaðarfulltrúana í Brussel.

Stofnanirnar

Embættismannanefndin fer með mál tveggja stofnana í umboði ráðherranefndarinnar, þ.e. Norræna iðnaðarsjóðsins í Osló (NI) og Norrænu prófanastofnunarinnar (Nordtest) í Espoo í Finnlandi. Starfsemin þar er bæði talin afar mikilvæg og hafa sérlegt gildi fyrir norrænt samstarf. Stjórnskipaðir fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum sitja í stjórnum beggja stofnananna, og munu ráðherranefndin og embættismannanefndin eftir sem áður gaumgæfa og sinna því starfi, sem þar fer fram.


Þú ert hér: Forsíða > Verkefni sem er lokið > Norðurlandaskrifstofa > Útgefið efni

Aðalavalmynd í haus

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Útgáfa
  • Lög og reglugerðir

Verkefni sem er lokið

  • Yfirlit yfir verkefni
  • Aðgerðir stjórnvalda
  • Endurreisn efnahagslífsins
  • Fréttir af aðgerðum og endurreisn
  • Áætlun um efnahagsstöðugleika
  • Nefnd um þróun Evrópumála
  • Opinberar eftirlitsreglur
  • Hönnunarsamkeppni
  • Einkavæðing
  • Norðurlandaskrifstofa
  • Upplýsingasamfélagið

Tungumál

  • English

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármála- og
    efnahagsráðuneytið
  • Mennta- og
    menningarmálaráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Umhverfis- og
    auðlindaráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Upplýsingavefur forsætisráðuneytisins

  • Ráðuneytið
    • Skipurit
    • Starfsmenn
    • Laus störf
    • Stefna
    • Fjármál
    • Sögulegt yfirlit
    • Stjórnarráðshúsið
    • Merki ráðuneytis
    • Afgreiðsla
    • Stofnanir
  • Ráðherra
    • Um ráðherra
    • Ræður og greinar
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Starfssvið
    • Málefni ríkisstjórnarinnar
    • Ráðherranefndir
    • Ísland 2020
    • Lagasamræming
    • Umbætur í stjórnsýslu
    • Nefndir
    • Þjóðartákn og orður
    • Siðareglur
    • Sjá öll verkefni
  • Útgáfa
    • Fréttsafn
    • Skýrslur og annað útgefið efni
    • Stefnur
    • Myndasafn
    • Áskrift
  • Lög og reglugerðir
    • Lög og reglugerðir
    • Lög
    • Reglugerðir
    • Forsetaúrskurðir
  • Annað
    • Áskrift og RSS
    • Fyrirspurnarform
    • Fyrir fjölmiðla
    • Veftré
    • Um vefinn

Samskipti

| Forsætisráðuneytið | Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg | 150 Reykjavík (sjá kort) | Sími: 545 8400 | Bréfasími: 562 4014 | Kt.: 550169-1269 | Netfang: postur@for.stjr.is |
| Aðgengisstefna | Öryggi og persónuvernd | Fyrirvari | Vefstjóri | Áskrift að fréttum og RSS |


Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar
Þetta vefsvæði byggir á Eplica