Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2011 Forsætisráðuneytið

Faglegar ráðningar í æðstu embætti

Fagleg og trúverðug umgjörð um ráðningar skapar traust á stjórnsýslunni. Í 8. bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er rætt um slæm áhrif pólitískra ráðninga. Meðal annars er bent á að taka þurfi á pólitískum ráðningum í mikilvægar stöður, svo sem ráðuneytisstjóra og nefnt að fyrir hrun hafi formaður bankastjórnar Seðlabankans verið ráðinn pólitískt og eins er nefndur fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins á gamalársdag var viðtal við Salvöru Nordal, forstöðumann Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, og einn af höfundum 8. kafla rannsóknarskýrslunnar. Þar heldur Salvör því fram að ekki hafi dregið úr pólitískum ráðningum á undanförnum mánuðum, eftir útkomu skýrslunnar, heldur þvert á móti. Ekki gerði Salvör tilraun til þess að rökstyðja þessa fullyrðingu á neinn hátt í viðtalinu. 

Árið 2006 skrifaði Gunnar Helgi Kristinsson prófessor grein um pólitískar ráðningar í veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla. Þar skilgreinir hann pólitískrar ráðningar á þann hátt að „með pólitískum ráðningum sé átt við að grunur leiki á að við tiltekna ráðningu innan faglegrar stjórnsýslu hafi pólitísk sjónarmið ráðið frekar en fagleg“.

Ný vinnubrögð innleidd

Frá því að ég tók við sem forsætisráðherra hef ég lagt mikla áherslu á umbætur í stjórnsýslu og eru ráðningar starfsmanna þar stór þáttur. Staðreyndirnar tala sínu máli. Frá því að ríkisstjórnir mínar tóku við hefur verið skipað í fjölmargar stöður innan stjórnkerfisins og af þeim ráðningum má ljóst vera að margt hefur færst til betri vegar. Skipað hefur verið í fjórar stöður ráðuneytisstjóra þ.e. í mennta- og menningarmálaráðuneyti, innanríkisráðuneyti, velferðarráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Stöðurnar voru allar auglýstar og í öllum tilvikum sá hæfnismatsnefnd um að meta hæfi umsækjenda og taka við þá viðtöl áður en ráðherra tók ákvörðun. Engin þessara skipana hefur verið talin pólitísk, samkvæmt skilgreiningunni hér að ofan.

Þá hafa verið gerðar breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands og ráðningarferill seðlabankastjóra endurskoðaður með tilkomu lögbundinnar hæfnismatsnefndar auk þess sem hæfniskröfur til að gegna embætti seðlabankastjóra hafa verið lögfestar. Jafnframt hafa verið lögfestar löngu tímabærar breytingar á verklagi við skipun dómara hér á landi, bæði héraðsdómara og hæstaréttardómara, og hefur ráðningarvaldið þar í raun verið fært frá sitjandi innanríkisráðherra (áður dómsmálaráðherra) á hverjum tíma til faglegrar hæfnismatsnefndar. Ráðherra þarf samþykki Alþingis vilji hann víkja frá niðurstöðu hæfnismatsnefndarinnar.

Enn frekari umbætur á döfinni

Einnig hefur þess verið gætt í tengslum við sameiningar ráðuneyta að faglega sé staðið að skipun skrifstofustjóra. Í nýlegri skýrslu nefndar sem ég skipaði til þess að undirbúa breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands er sérstaklega fjallað um ráðningar. Þar er m.a. lagt til að það fyrirkomulag verði fest í sessi að hæfnismatsnefndir eða ráðningarnefndir undirbúi ráðningar æðstu embættismanna. Í skýrslunni er rætt um mikilvægi þess að útrýma pólitískum ráðningum innan stjórnsýslunnar til að auka traust á henni. Þegar er hafin vinna við að hrinda þessum tillögum í framkvæmd.

Markmiðið er að faglega sé staðið að ráðningum í stjórnkerfinu öllu og hæfasta fólkið ráðið hverju sinni. Ég fullyrði að pólitísk sjónarmið eru á undanhaldi í þessu sambandi og mun faglegar hefur verið staðið að ráðningum í stöður æðstu embættismanna í tíð núverandi ríkisstjórnar en áður hefur tíðkast. Engu að síður tel ég að við getum gert enn betur og mun ég áfram beita mér til að svo megi verða.  

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum