Um ráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
Fædd í Reykjavík 4. október 1942.- Foreldrar: Sigurður Egill Ingimundarson, fæddur 10. júlí 1913, dáinn 12. okt. 1978, alþingismaður og forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, og kona hans Karítas Guðmundsdóttir, fædd 19. desember 1917, dáin 26. ágúst 1997, húsmóðir.
- Maki 1. (28. febr. 1970) Þorvaldur Steinar Jóhannesson, fæddur 3. mars 1944, bankastarfsmaður í Reykjavík. Þau skildu. Foreldrar: Jóhannes Eggertsson og kona hans Steinunn G. Kristinsdóttir. Maki 2. (15. júní 2002) Jónína Leósdóttir, fædd 16. maí 1954, rithöfundur og leikskáld. Foreldrar: Leó Eggertsson og kona hans Fríða Björg Loftsdóttir. Synir Jóhönnu og Þorvalds: Sigurður Egill (1972), Davíð Steinar (1977). Sonur Jónínu: Gunnar Hrafn Jónsson (1981).
Menntun
- Verslunarpróf VÍ 1960.
Starfsferill
- Flugfreyja hjá Loftleiðum 1962–1971. Skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971–1978.
- Skipuð 8. júlí 1987 félagsmálaráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september Skipuð 28. september 1988 félagsmálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skipuð 30. apríl 1991 félagsmálaráðherra í þriðja sinn, lausn 24. júní 1994.
- Í stjórn Flugfreyjufélags Íslands 1966–1969, formaður 1966 og 1969. Í stjórn félagsins Svölurnar 1974–1976, formaður 1975. Í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1976–1983. Varaformaður Alþýðuflokksins 1984–1993. Formaður í stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra og öryrkja 1979–1983. Í nefnd til að undirbúa frumvarp um tilhögun og framkvæmd fullorðinsfræðslu og endurskoðunar laga um almannatryggingar 1978. Í tryggingaráði 1978–1987, formaður þess 1979–1980. Sat á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins 1980–1985. Formaður Þjóðvaka 1995.
Önnur störf
- Alþingismaður Reykvíkinga 1978–2003 (landskjörin 1979–1987) (Alþýðuflokki, utan flokka, Þjóðvaka, þingflokki jafnaðarmanna, Samfylkingunni), alþingismaður kjördæmisins Reykjavík suður síðan 2003 fyrir Samfylkinguna.
- Félagsmálaráðherra 1987–1994.
- 2. varaforseti neðri deildar Alþingis 1979, 1. varaforseti neðri deildar 1983–1984, 4. varaforseti Alþingis síðan 2003.
- Utanríkismálanefnd 1995–1996, iðnaðarnefnd 1995–1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995–1997 og 1999–2000 og 2004–2007, allsherjarnefnd 1996–1999, efnahags- og viðskiptanefnd 1999–2007, kjörbréfanefnd 1999–2003 og félagsmálanefnd 2003–2007.
- Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 1996–2003, Íslandsdeild ÖSE-þingsins 2003–2007.
- Félagsmálaráðherra frá 24. maí 2007.
- Forsætisráðherra frá 1. febrúar 2009.
Nánar
-
Upplýsingar um þingstörf Jóhönnu Sigurðardóttur á vef Alþingis
-
VefurJóhönnu Sigurðardóttur althingi.is/johanna
-
Mynd af Jóhönnu Sigurðardóttur (1.1mb jpg)
