Um ráðherra

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fæddur í Reykjavík 12. mars 1975. Foreldrar hans eru: Gunnlaugur M. Sigmundsson (f. 30. júní 1948), cand. oecon. og alþingismaður, framkvæmdastjóri og Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir (f. 5. okt. 1948) lífeindafræðingur og skrifstofustjóri. Maki Sigmundar Davíðs er Anna Sigurlaug Pálsdóttir (f. 9. des. 1974) mannfræðingur. Foreldrar hennar eru: Páll Samúelsson og Elín Sigrún Jóhannesdóttir. Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug eiga eina dóttur, Sigríði Elínu (2012).

Menntun

Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu. Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu. Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.

Störf og embætti

Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000-2007.

Forseti Nordiska Ekonomie Studerandes Union 2000-2002. Fulltrúi í skipulagsráði Reykjavíkurborgar 2008-2010.

Formaður Framsóknarflokksins síðan 2009.

Alþingismaður fyrir Reykjavík norður. 2009-2013 (Framsóknarflokki), alþingismaður fyrir Norðausturkjördæmi síðan 2013.

(Upplýsingar af vef Alþingis)