Alþjóðlegt samstarf á vegum forsætisráðuneytis
Þátttaka ríkisstjórnaroddvita um allan heim í alþjóðasamskiptum hefur aukist mjög á undanförnum árum og það á einnig við um forsætisráðherra Íslands. Þar á meðal eru leiðtogafundir Atlantshafsbandalagsins, Sameinuðu þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, Evrópuráðsins, Eystrasaltsráðsins og leiðtogafundir EFTA/EES-ríkjanna og Evrópusambandsins. Þessi fundir eru ekki haldnir reglulega heldur eftir þörfum og oft á 2-4 ára fresti. Þá má nefna forsætisráðherra Norðurlanda sem hittast tvisvar til þrisvar á ári og sameiginlega fundi norrænu og baltnesku forsætisráðherranna. Eins ber að nefna opinberar heimsóknir forsætisráðherra til annarra ríkja og heimsóknir starfssystkyna hans til Íslands. Loks tekur forsætisráðherra þátt í ýmsum atburðum og athöfnum erlendis.
Starfsmenn forsætisráðuneytisins koma einnig að ýmsum störfum sem varða alþjóða- og milliríkjasamskipti, m.a. sem fulltrúar í samstarfs- og samninganefndum sem einnig eru skipaðar fulltrúum annarra ráðuneyta. Í ákveðnum tilvikum hefur forsætisráðuneytið haft forystu um eða komið að tímabundnum verkefnum sem fela í sér alþjóðlegt eða svæðisbundið samstarf.
Tenglar
- Atlandshafsbandalagið, nato.int
- EFTA, efta.int
- EES samningurinn, utanrikisraduneyti.is/samningar/ees
- Evrópuráðið, coe.int
- Eystrasaltsráðið, cbss.org
- Sameinuðu þjóðirnar, un.org
- Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, oscepa.org
