Listi yfir allar nefndir og ráð sem heyra undir forsætisráðuneyti

Nefnd til undirbúnings hátíðahalda 17. júní 2011 til að minnast 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar

Alþingi samþykkti þann 16. mars sl. að fela forsætisráðherra að skipa nefnd til að undirbúa hvernig minnast eigi þess að 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta.

Nefndinni er ætlað að gera fyrstu tillögur eigi síðar en í árslok 2008 en vinna síðan að undirbúningi hátíðarhalda á árinu 2011. Nefndin leiti enn fremur eftir tillögum frá stofnunum og samtökum sem tengjast minningu Jóns Sigurðssonar forseta.

Nefndarmeðlimir:

  • Sólveig Pétursdóttir, formaður
  • Ásthildur Sturludóttir
  • Sigurður Pétursson
  • Finnbogi Hermannsson
  • Sigrún Magnúsdóttir
  • Kristinn H. Gunnarsson
  • Karl M. Kristjánsson
  • Eiríkur Finnur Greipsson

Sigrún Ólafsdóttir, forsætisráðuneyti, er starfsmaður nefndarinnar.

Sjá einnig:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica