Listi yfir allar nefndir og ráð sem heyra undir forsætisráðuneyti

Hússtjórn þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal 2006-2010

  • Einar Mathiesen - formaður
  • Gunnar Þór Jónsson - aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson - aðalmaður
  • Ingvar Hafsteinsson - varamaður

Varðveisla og dagleg stjórn þjóðveldisbæjarins og kirkjunnar er í höndum hússtjórnar sem skipuð er til fjögurra ára í senn. Einn stjórnarmanna er tilnefndur af Skeiða- og Gnúpverjahreppi, annar af Landsvirkjun og hinn þriðji af Þjóðminjasafni Íslands. Forsætisráðherra getur skipað einn stjórnarmann til viðbótar án tilnefningar. Tilnefning varamanna er með sama hætti.

  • Forsætisráðherra skipar formann hússtjórnarinnar úr hópi stjórnarmanna. Að öðru leyti skiptir hússtjórnin með sér verkum.
  • Hússtjórn hefur umsjón með þjóðveldisbænum og ber ábyrgð á starfsemi í bænum, rekstri og fjármálum.
  • Í samræmi við máldaga fyrir kirkju þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal annast hússtjórnin umsjá kirkjunnar, rekstur og viðhald.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica