Nefnd um þróun Evrópumála
Með vísan til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar frá 23. maí 2007, ákvað ríkisstjórnin að skipa nefnd fulltrúa stjórnmálaflokka á Alþingi og fulltrúa Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Viðskiptaráðs Íslands. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra skipa þar að auki hvort sinn fulltrúann og skulu þeir deila með sér formennsku.
Nefndinni er ætlað að vinna á grunni niðurstaðna Evrópunefndar frá mars 2007 og:
- Fylgja eftir tillögum um aukna þátttöku hennar, stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi.
- Framkvæma nánari athugun á því hvernig hagsmunum Íslendinga verði best borgið í framtíðinni gagnvart Evrópusambandinu.
- Fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga.
Nefndin ákveður sjálf starfshætti og hvaða málaflokka hún tekur fyrir. Áhersla skal lögð á beina miðlun upplýsinga til og frá stofnunum á Evrópuvettvangi en nefndin skal, eftir því sem tilefni er til, stuðla að útgáfu, samráðsfundum með hagsmunaaðilum og heimsóknum erlendra sérfræðinga. Nefndin skal starfrækja heimasíðu þar sem starfsáætlun, fundargerðir og ítarefni er birt og hún mun skila ríkisstjórninni skýrslu árlega.
Í nefndinni sitja:
Sjálfstæðisflokkurinn
Formaður: Illugi Gunnarsson
Fulltrúi: Steingrímur Sigurgeirsson
Samfylkingin
Formaður: Ágúst Ó. Ágústsson
Fulltrúi: Aðalsteinn Leifsson
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
Fulltrúi: Katrín Jakobsdóttir
Varafulltrúi: Árni Þ. Sigurðsson
Framsóknarflokkurinn
Fulltrúi: Birkir Jónsson
Varafulltrúi: Sæunn Stefánsdóttir
Frjálslyndi flokkurinn
Fulltrúi: Jón Magnússon
Varafulltrúi: Kristinn H. Gunnarsson
Samtök atvinnulífsins
Fulltrúi: Þór Sigfússon
Varafulltrúi: Vilhjálmur Egilsson
Alþýðusamband Íslands
Fulltrúi: Gylfi Arnbjörnsson
Varafulltrúi: Halldór Grønvold
Viðskiptaráð Íslands
Fulltrúi: Erlendur Hjaltason
Varafulltrúi: Finnur Odsson
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
Fulltrúi: Páll H. Hannesson
Varafulltrúi: Þuríður Einarsdóttir
