Listi yfir allar nefndir og ráð sem heyra undir forsætisráðuneyti

Orðunefnd

  • Ólafur G. Einarsson, fyrrv. ráðherra og fyrrv. forseti Alþingis, formaður orðunefndar
  • Ólafur Egilsson, fyrrv. sendiherra
  • Rakel Olsen, framkvæmdastjóri
  • Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi
  • Örnólfur Thorsson, orðuritari

Fimm manna orðunefnd ræður málefnum hinnar íslensku fálkaorðu, sbr. forsetabréf nr. 145/2005, og gerir tillögur til stórmeistara orðunnar, sem er forseti Íslands, um veitingu hennar. Eftir tillögu forsætisráðherra kveður forseti Íslands 4 menn, sem sæmdir eru og bera heiðursmerki orðunnar, til setu í nefndinni til sex ára í senn, en að auki situr forsetaritari í nefndinni og er hann jafnframt ritari hennar.

Nánari upplýsingar um starfsemi orðunefndar veitir orðuritari, auk þess sem hann veitir móttöku öllum tillögum um orðuveitingar. Orðuritari er ávallt starfandi forsetaritari. Vinsamlega athugið að tillögur verða að berast skriflega og undirritaðar.

Sími: 540-4400
Netfang: forseti@forseti.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica