Almannavarna- og öryggismálaráð
Forsætisráðherra undirritaði í dag reglugerð um starfshætti almannavarna- og öryggismálaráðs sem skipað er samkvæmt 4. gr. laga nr. 82/2008 um almannavarnir. Ráðið kemur saman eftir þörfum og með undirritan reglugerðarinnar í dag verður hægt að kalla það saman með skömmum fyrirvara.
Almannavarna- og öryggismálaráð markar stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum til þriggja ára í senn. Í almannavarna- og öryggismálastefnu stjórnvalda skal gera grein fyrir ástandi og horfum í almannavarna- og öryggismálum í landinu, fjalla um áhersluatriði varðandi skipulag almannavarna- og öryggismála, forvarnastarf, nauðsynlega samhæfingu á efni viðbragðsáætlana og starfsemi opinberra stofnana á því sviði, nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum, endurreisn eftir hamfarir og aðrar aðgerðir sem ráðið telur nauðsynlegar til þess að markmið laga þessara náist.
Skipun nefndar:
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, formaður
- Árni Snorrason, veðurstofustjóri, Veðurstofa Íslands
- Dr. Björn Karlsson, brunamálastjóri, Brunamálastofnun
- Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri, umhverfisstofnun
- Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneytisins
- Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri, heilbrigðisráðuneytið
- Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri, samgönguráðuneytið
- Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri, umhverfisráðuneytið
- Sigurgeir Guðmundsson, slysavarnafélagið Landsbjörg
- Matthías Halldórsson, Landlæknisembættið
- Anna Stefánsdóttir, Rauði Kross Íslands
- Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir
- Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins
- Þórhallur Ólafsson, Neyðarlínan ohf
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, Orkumálastofnun
- Karl Björnsson, Samband íslenskra sveitarfélaga
- Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, iðnaðarráðuneytið
- Benedikt Jónsson, ráðuneytisstjóri, utanríkisráðuneytið
- Stella Víðisdóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga
- Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnet
- Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri, dóms- og kirkjumálaráðuneytið
- Hrafnkell V. Gíslason, Póst- og fjarskiptastofnun
- Georg Kr. Lárusson, forstjóri, Landhelgisgæsla Íslands
- Pétur K. Maack, forstjóri, Flugmálastjórn Íslands
- Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, Vegagerðin
- Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri, Siglingastofnun Íslands
- Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg
- Haraldur Jóhannessen, ríkislögreglustjóri, Ríkislögreglustjóri
- Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, iðnaðarráðuneytið
- Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, utanríkisráðuneytið
- Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, heilbrigðisráðuneytið
- Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, umhverfisráðuneytið
- Kristján L. Möller, samgönguráðherra, samgönguráðuneytið
