Ráðherranefnd í atvinnumálum
Ráðherranefnd í atvinnumálum fjallar um atvinnu- og vinnumarkaðsmál m.a. í tengslum við markmið sem sett eru fram í stefnunni Ísland 2020. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra eigi föst sæti í nefndinni en að efnahags-og viðskiptaráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, iðnaðarráðherra, velferðarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra taki sæti í nefndinni eftir því hvaða mál eru til umfjöllunar. Jafnframt verði aðrir ráðherrar kallaðir til eftir því sem tilefni er til hverju sinni.
Tveir undirhópar starfa undir nefndinni, annars vegar um mótun atvinnustefnu og sköpun starfa og hins vegar um vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnulausa og úrræði á sviði starfs-og endurmenntunar. Hóparnir verði m.a. skipaðir fulltrúum tilnefndum af hlutaðeigandi ráðuneytum, öllum þingflokkum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja og Bændasamtökum Íslands. Jafnframt verða kallaðir til setu í hópunum sérfræðingar sem búa yfir reynslu og þekkingu á sviði atvinnu- og vinnumarkaðsúrræða.

