Hrafnseyrarnefnd
- Angantýr Jónasson aðalmaður
- Eiríkur Finnur Greipsson formaður
- Jón Páll Halldórsson aðalmaður
- Guðfinna Hreiðarsdóttir aðalmaður
Alþingi samþykkti á lýðveldisárinu 1944 þingsályktun þar sem nefnd þeirri, sem fela átti að undirbúa hátíðarhöld vegna lýðveldisstofnunar á Íslandi, var jafnframt falið að „rannsaka og gera tillögur um nauðsynlegar framkvæmdir á Rafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.“ Ári síðar samþykkkti Alþingi áskorun til ríkisstjórnarinnar um að skipa nefnd til að stýra framkvæmdum á Rafnseyri. Hrafnseyrarnefnd tók til starfa árið 1945 og skipa hana þrír einstaklingar og er formaður skipaður af forsætisráðherra, sem skipar aðra nefndarmenn skv. tilnefningu.
Á vegum Hrafnseyrarnefndar var árið 1980 opnað safn til minningar um Jón Sigurðsson, en sama ár var vígð þar kapella. Þá hefur nefndin einnig beitt sér fyrir endurgerð á gamla torfbænum á Hrafnseyri, sem nú er risinn. Einnig gengst nefndin fyrir hátíðarhöldum á Hrafnseyri hinn 17. júní á ári hverju.
Hrafnseyrarnefnd fær árlegt framlag úr ríkissjóði.
