Starfssvið

Starfssvið forsætisráðuneytis

Samkvæmt  forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta, fer forsætisráðuneytið með mál er varða:

A. Stjórnskipan, þar á meðal:

  1. Stjórnskipan lýðveldisins Íslands.
  2. Embætti forseta Íslands, þ.m.t. ákvörðun kjördags, embættisgengi og embættisbústað.
  3. Ríkisráð Íslands.
  4. Alþingi.

B. Stjórnarráð Íslands, þar á meðal:

  1. Forystu og verkstjórn innan Stjórnarráðs Íslands.
  2. Skipun ráðherra og lausn.
  3. Skiptingu starfa og samhæfingu þeirra milli ráðherra og ráðuneyta.
  4. Ríkisstjórn og Stjórnarráð Íslands í heild, þ.m.t. ráðstöfun skrifstofuhúsa og gestahúsa ríkisstjórnarinnar.
  5. Ráðherranefndir.
  6. Stjórnarfar almennt, þ.m.t. stjórnsýslulög og upplýsingalög.
  7. Umbætur í löggjöf og stjórnsýslu.
  8. Stefnumótun og þróun stjórnsýslu.
  9. Skipulag og starfshætti.

C. Þjóðartákn og orður, þar á meðal:

  1. Fána Íslands og ríkisskjaldarmerki.
  2. Þjóðsöng Íslendinga.
  3. Hina íslensku fálkaorðu.
  4. Önnur heiðursmerki.

D. Annað:

  1. Almannavarna- og öryggismálaráð.
  2. Vísinda- og tækniráð.
  3. Þjóðlendur.
  4. Samningagerð um endurgjald fyrir nýtingu auðlinda í eigu og á forræði íslenska ríkisins.
  5. Umbreyting varnarsvæða í borgaraleg not.
  6. Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðinga þess ef manntjón hlýst af.
  7. Rannsókn á starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn.
  8. Embætti ríkislögmanns.
  9. Umboðsmann barna.
  10. Þingvelli og Þingvallaþjóðgarð.

Auk framangreinds fer ráðuneytið með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.

  • Laus störf hjá forsætisráðuneyti eru auglýst á Starfatorginu þegar svo ber undir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica