Einkavæðing

Einkavæðing á vegum ríkisins - erindisbréf nefndarinnar

Forsætisráðuneytið
Reykjavík, 14. febrúar 1996


Hreinn Loftsson hrl.
Sunnuflöt 15
210, Garðabæ


English
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa framkvæmdanefnd um einkavæðingu, útboð rekstrarverkefna og sölu ríkiseigna sem starfa mun í umboði ráðherranefndar um einkavæðingu.

Markmið ríkisstjórnarinnar með einkavæðingu, útboði rekstrarverkefna og sölu ríkiseigna eru að draga úr umsvifum ríkisrekstrar, að auka hagkvæmni í opinberum rekstri og þar með að nýta betur ráðstöfunarfé ríkisins, að efla innlendan hlutabréfamarkað og að bæta fjárhagsstöðu ríkissjóðs.

Í ljósi þessa er hlutverk framkvæmdanefndarinnar sem hér segir:

- að annast samræmingu og umsjón einkavæðingar ríkisfyrirtækja þ.m.t. sölu eignarhluta ríkisins í félögum. Í störfum sínum fari nefndin eftir verklagsreglum við framkvæmd einkavæðingar sem ríkisstjórnin samþykkir.

- að hvetja til útboða á rekstri og þjónustu sem ríkið hefur staðið að og færa þannig verkefni frá ríki til einkaaðila.

- að fara í kerfisbundna athugun á eignum ríkisins, einkum fasteignum, lóðum, löndum og bújörðum, og gera tillögur um stefnu ríkisins varðandi sölu á hluta þessara eigna, með það að markmiði að lækka umsýslu- og rekstrarkostnað og afla ríkissjóði tekna.

Nefndin skal leita eftir tilnefningu tengiliða í einstökum ráðuneytum og hafa við þá náið samstarf.

Nefndin skal undirbúa verk- og tímaáætlun vegna ofangreindra verkefna á kjörtímabilinu, sem verði lögð fyrir ríkisstjórn og birt í byrjun hvers árs. Áætlunin skal gerð til eins árs í senn.

Þér eru hér með skipaður formaður í nefndinni. Ásamt yður eiga í henni sæti Steingrímur Ari Arason, tilnefndur af fjármálaráðherra, Jón Sveinsson, tilnefndur af utanríkisráðherra og Sævar Þ. Sigurgeirsson, tilnefndur af iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Starfsmaður nefndarinnar er Skarphéðinn Berg Steinarsson, deildarstjóri í fjármálaráðuneyti.


Davíð Oddsson

/Guðmundur Árnason


Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica