Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
Frá árinu 2010 hefur mennta- og menningarmálaraðuneyti tekið við styrkumsóknum og veitt nánari upplýsingar um sjóðinn.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Þjóðhátíðargjöf Norðmanna er styrktarsjóður sem úthlutar uppsöfnuðum vöxtum að þjóðargjöf Noregs til íslensku þjóðarinnar í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974. Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum árið 1976. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 279/1975.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans „að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli“. Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi. Norðurlandaskrifstofa tekur við styrkumsóknum og veitir nánari upplýsingar um sjóðinn.
Styrkjum er að jafnaði úthlutað árlega.
Forsætisráðherra skipar þriggja manna stjórn til fjögurra ára í senn.
- Fréttatilkynning um úthlutun 2009
- Auglýsing 2009
- Fréttatilkynning um úthlutun 2008
- Auglýsing 2008
- Fréttatilkynning um úthlutun 2007
- Auglýsing 2007
- Fréttatilkynning um úthlutun 2006
- Auglýsing 2006
- Fréttatilkynning um úthlutun 2005
- Fréttatilkynning um úthlutun 2003
- Fréttatilkynning um úthlutun 2002
- Fréttatilkynning um úthlutun 2001
Núverandi stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna:
Skipuð af forsætisráðherra til 08. maí 2010
- Ingimundur Friðriksson, formaður
- Snjólaug Ólafsdóttir
- Margit F. Tveiten
