Fánadagar og fánatími
Í forsetaúrskurði frá 1991 nr. 5 23. janúar kemur fram að draga skuli fána á stöng á húsum opinberra stofnana eftirgreinda daga:
- Fæðingardag forseta Íslands (2012 er það 14. maí)
- Nýársdag
- Föstudaginn langa (2013 er það 29. mars)
- Páskadag (2013 er það 31. mars)
- Sumardaginn fyrsta (2013 er það 25. apríl)
- 1. maí
- Hvítasunnudag (2012 er það 27. maí)
- Sjómannadaginn (2012 er það 3. júní)
- 17. júní
- 1. desember
- Jóladag
- 16. nóvember, fæðingardag Jónasar Hallgrímssonar.
Alla ofangreinda daga skal draga fána að hún, nema föstudaginn langa, þá í hálfa stöng.
Fána skal ekki draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skal hann eigi vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis.
Ef flaggað er við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðarför eða minningarathöfn má fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.
