Um notkun íslenskra sérfána
B.1. Ríkisfáninn
a. Ríkisfánann (tjúgufánann) nota Alþingi, ríkisstjórn, Hæstiréttur, ráðuneyti, aðrar stofnanir ríkisins og fulltrúar utanríkisþjónustunnar erlendis, þ.e. sendiráð, ræðisstofur og aðrar sendistofnanir.
b. Á byggingum þeirra aðila hér á landi, sem nota ríkisfánann samkvæmt a-lið, skal draga fánann á stöng eftirgreinda daga (sjá forsetaúrskurð):
- Fæðingardag forseta Íslands.
- Nýársdag.
- Föstudaginn langa.
- Páskadag.
- Sumardaginn fyrsta.
- 1. maí.
- Hvítasunnudag.
- Sjómannadaginn.
- 17. júní.
- 1. desember.
- Jóladag.
- 16. nóvember, fæðingardag Jónasar Hallgrímssonar.
Alla ofangreinda daga skal draga fána að hún, en fella í hálfa stöng á föstudaginn langa.
c. Hverja daga aðra en segir í b-lið og við hvaða tækifæri draga skal ríkisfánann að hún, fer eftir ákvörðun forsætisráðuneytisins.
B.2. Fáni forseta Íslands
Notkun fána forseta Íslands fer eftir ákvörðun forsetaembættisins.
B.3. Tollgæslufáni
Tollgæslufáni er eingöngu notaður á byggingum og farartækjum tollgæslunnar.
