Um smáfána, fánaveifur o.fl.
C.1. Smáfánar
Um borðfána, bílfána og aðra smáfána fer, að því er varðar liti og stærðarhlutföll reita og krossa, samkvæ
mt almennum reglum um þjóðfánann, ákvæðum fánalaga og auglýsingu um fánaliti.
Eigi nota aðrir íslenska ríkisfánann á bifreiðum hér á landi en forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti Hæstaréttar, sem geta notað hann, þegar þeir ferðast í bifreið í embættiserindum.
C.2. Fánaveifur, fánaborðar o.fl.
Hinar almennu reglur um þjóðfánann gilda ekki um fánaveifur og fánaborða að öðru leyti en því, að ætíð skal nota rétta fánaliti. Breidd hvítu randarinnar skal vera helmingur af breidd hinnar rauðu.
Öllum er frjálst að nota fánaveifur og fánaborða.
Rísi ágreiningur um gerð eða notkun á fánaveifum, fánaborðum eða öðrum fánamerkjum, skal leita leiðbeininga forsætisráðuneytisins.
