Heiðursmerki Rauðakrossins

Heiðursmerki Rauðakross Íslands

Heiðursmerki Rauða-krossinsForsetabréf, nr. 7 24. febrúar 1949, um heiðursmerki þetta er svohljóðandi:

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Stjórnendur Rauðakross Íslands hafa farið þess á leit, að gert verði heiðursmerki, sem sæma megi íslenska menn og erlenda, er inna af höndum mannúðarstörf, sem mikils þykir um vert. Að ráði forsætisráðherra fellst ég á, að efnt verði til slíks heiðursmerkis, og skulu um það gilda eftirfarandi reglur:

1. gr. Heiðursmerkið er í tveimur stigum. Fyrra stigið er hvítsteindur kross, gullbryddur. Armar krossins eru breiðastir yst og tjúgumyndaðir. Á framhlið krossmarksins er blár hringur og á hann mörkuð gullnu letri kjörorð Rauðakross Íslands: CARITATE SANITATE. Milli arma krossmarksins, utan bláa hringsins, eru felldir mislangir geislar úr gulli. Innan bláa hringsins er hvítur flötur og á hann dregið hið alþjóðlega merki Rauðakrossins. Bakhlið merkisins er um það eitt frábrugðin, að áletrunin er þar: BENEFACTORIBUS RKÍ.

Heiðursmerki fyrra stigs er 4,5 sentímetrar að þvermáli.

Annað stig heiðursmerkisins er eins og hitt, nema fimmtungi minna og silfur í stað gulls.

Heiðursmerki fyrra stigs skal bera um hálsinn í silkibandi með fánalitum Íslands, þannig að rautt sé í miðju, hvítt til hvorrar hliðar, en blátt yst. Bláu rendurnar skulu hvor um sig jafnbreiðar báðum hinum.

Heiðursmerki annars sigs skal borið á brjóstinu vinstra megin í litbandi sömu gerðar.

Eigi má bera litbandið eitt í neins konar formi sem orðumerki.

2. gr. Heiðursmerki þessu má sæma íslenska menn og erlenda, er þess þykja verðir af störfum sínum að mannúðarmálum.

3.gr. Forseti veitir heiðursmerkið.

4.gr. Forseti skipar þrjá menn í nefnd, er geri tillögur um veiting heiðursmerkisins. Einn skal skipa eftir tillögu forsætisráðherra og sé hann félagi Rauðakross Íslands, annar sé formaður Rauðakross Íslands, en hinn þriðji formaður orðunefndar hinnar íslensku fálkaorðu. Forseti skipar einhvern þeirra formann nefndarinnar, samkvæmt tillögu forsætisráðherra.

5.gr. Engan má sæma heiðursmerkinu, nema nefndarmenn allir séu því samþykkir og sérstök ástæða þyki til. Ef um erlendan ríkisborgara er að ræða, skal leita umsagnar utanríkisráðherra Íslands áður en ákvörðun er tekin um veiting heiðursmerkisins.

6.gr. Eigi má veita fleiri heiðursmerki árlega en fimm, þó aldrei nema eitt fyrra stigs. Sá, er hlýtur æðra stig merkisins, skal skila hinu aftur, hafi hann verið sæmdur því.

Veiting heiðursmerkja skal að jafnaði fara fram á stofndegi Rauðakross Íslands, 10. desember.

Birta skal í Lögbirtingablaði og Stjórnartíðindum hverjir heiðursmerkið hljóta.

7.gr. Rauðikross Íslands ber allan kostnað af heiðursmerki þessu.

8.gr. Við andlát þess, er heiðursmerkið hefur hlotið, ber erfingjum að skila formanni nefndarinnar merkinu aftur.