Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meiraNiðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.
Lesa meiraRíkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.
Lesa meiraÍ apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.
Lesa meiraEinstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið. Í henni segir m.a. að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun.
Lesa meiraNiðurstöður rannsóknar um aðgang að Interneti í mars og apríl 2001 sem PricewaterhouseCoopers vann fyrir Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraNiðurstöður rannsóknar um aðgang að Interneti í september árið 2000 sem PricewaterhouseCoopers vann fyrir Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraInternetkönnun sem unnin var af PWC í september 2000 sýndi að 64,7% höfðu aðgang að tölvu með Interneti á heimilum, 41,2% á vinnustöðum og 17,9% í skóla. 22,2% höfðu ekki aðgang að tölvu með Internettengingu.
Lesa meiraVinnuáætlun um þróun rafrænna viðskipta og rafrænnar stjórnsýslu 2000-2002.
Lesa meiraAð tilstuðlan verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið, sem starfar á vegum forsætisráðuneytis, svo og samgönguráðuneytis og RUT-nefndar hefur verið gerð úttekt á flutningsgetu fjarskiptakerfisins.
Lesa meira