Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.
Fréttaannáll
Út er komin skýrslan Nordic Information Society Statistics 2002 um upplýsingasamfélagið á Norðurlöndum. Skýrslan byggir á könnunum sem gerðar voru meðal einstaklinga og fyrirtækja á tímabilinu nóvember 2001 til júní 2002.
Lesa meira
84.7% svarenda hafa aðgang að Interneti í vinnu, skóla eða á heimili í nóvember 2002 samkvæmt IBM consulting services á Íslandi.
Lesa meira
Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á þróunarverkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið sem ráðuneytið hefur stýrt frá árinu 1997. Úttektina framkvæmdi PWC Consulting, nú IBM Business Consulting Services, og liggja niðurstöður nú fyrir.
Lesa meira
Tvö íslensk verkefni hlutu verðlaun Evrópska skólanetsins um bestu notkun á upplýsingatækni í skólastarfi. Hátt í 800 verkefni bárust í keppnina og komust 16 þeirra í úrslit.
Lesa meira
Stofnað hefur verið félag sem hefur það að markmiði að leggja sæstreng frá Íslandi og Færeyjum til Skotlands. Strengurinn er í daglegu tali kallaður FARICE, líkt og félagið, er að lagningunni stendur.
Lesa meira
Forsætisráðherra mælti á Alþingi 14. nóvember fyrir frumvarpi til laga um breytingu á stjórnsýslulögum nr. 37/1993 (rafræn stjórnsýsla). Frumvarpið er byggt á skýrslu nefndar sem forsætisráðherra skipaði til að fara með skipulegum hætti yfir hvaða lagalegu hindranir kynnu að standa þróun rafrænna stjórnsýsluhátta í vegi og hvaða lagalega umhverfi væri almennt æskilegt að búa rafrænni stjórnsýslu til framtíðar.
Lesa meira
Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytið hélt ráðstefnu 14. nóvember 2002 þar sem fjallað var um hvað heilbrigðisnetið er, öryggiskröfur þess, hvaða möguleikar opnast og hvaða áhrif það mun hafa á störf heilbrigðisstarfsfólks.
Lesa meira
Hagstofa Íslands hefur gefið út skýrslu sem hefur að geyma niðurstöður rannsóknar á notkun fyrirtækja á upplýsingatæknibúnaði og rafrænum viðskiptum þeirra. Rannsóknin var framkvæmd í maí og júní 2002.
Lesa meira
Þann 12. nóvember hélt menntamálaráðuneytið ráðstefnu um þróunarverkefni í upplýsingatækni. Þar var kynnt matsskýrsla Félagsvísindastofnunar H.Í. á þróunaskólaverkefninu og skýrt frá hvernig menntamálaráðuneytið hyggst vinna að frekari eflingu upplýsingatækni í skólastarfi.
Lesa meira
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnaði upplýsingavef mánudaginn 11. nóvember, vegna alþingiskosninganna sem fram fara 10. maí árið 2003. Opnun þessa vefs er enn eitt skref í átt til þess að gera upplýsingar stjórnvalda enn aðgengilegri öllum almenningi.
Lesa meira
Erindi Björns Davíðssonar hjá Snerpu á norrænu málþingi um upplýsingatækni í Osló 10. október 2002.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra flutti erindi á Norrænum ráðherrafundi í Osló. Yfirskrift erindis samgönguráðherra var "Sýn stjórnvalda á verðlagningu gagnaflutninga".
Lesa meira
Þann 10. október 2002 stóð Norræna ráðherranefndin um upplýsingatækni fyrir ráðherrafundi í Osló um "Breiðbandsmál frá sjónarhóli Norðurlanda". Á fundinn mættu ráðherrar upplýsingatæknimála frá öllum Norðurlöndunum.
Lesa meira
RANNÍS úthlutaði 12. júní 2002 styrkjum í markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál. Samtals er úthlutað vorið 2002 51.900 þ.kr til verkefna á sviði upplýsingartækni.
Lesa meira
RMR hefur opnað fyrir viðskipti. Stefnt er að því að öll innkaup ríkisins í tilteknum vöruflokkum verði rafræn innan tveggja ára.
Lesa meira
Skýrsla starfshóps um kostnað við gagnaflutninga og eflingu fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu á Íslandi.
Lesa meira
Menntamálaráðuneytið úthlutaði þann 17. apríl 2002 styrkjum úr tungutæknisjóði sem komið var á fót til að efla íslenska tungu í upplýsingasamfélagi.
Lesa meira
Fjögur samtök sem starfað hafa á sviði rafrænna viðskipta hafa myndað sameiginlegan vettvang SARÍS, samráð um rafrænt Ísland. Iðnaðarráðherra flutti ávarp á fyrstu ráðstefnu SARÍS sem haldin var 17. apríl 2002.
Lesa meira
Skýrslutæknifélagið stóð fyrir ráðstefnunni Með allt á hreinu þann 14. mars 2002. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra flutti ávarp á ráðstefnunni og sagði frá á hvern hátt stjórnvöld hafa beitt sér fyrir endurskoðun á lögum til að stuðla að framþróun rafrænna viðskipta.
Lesa meira
Rafrænn gagnabanki , www.habygg.is var opnaður á Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins þ. 26. febrúar 2002. Markmiðið með þessum opna gagnabanka er að koma á framfæri ráðgjöf og hagnýtum upplýsingum á rafrænu formi til byggingariðnaðarins, skólakerfisins og almennra húseigenda.
Lesa meira
Heilbrigðis- og tryggingamálráðuneytið mótaði á árunum 1996 - 1998 stefnu sína í upplýsingamálum heilbrigðiskerfisins. Sú stefnumörkun byggist svo aftur á stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um Íslenska upplýsingasamfélagið. Það má skipta forgangsverkefnum á þessu sviði í þrennt: Heilbrigðisnetið, rafrænu sjúkraskrána, og fjarlækningar.
Lesa meira
Dómsmálaráðuneytið hefur opnað vefinn www.lagabirting.is en þar er hægt að skoða Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað allt frá byrjun ársins 2001.
Lesa meira
Þróunarverkefninu um upplýsingasamfélagið lýkur í lok árs 2002 að óbreyttu. Ákveðið hefur verið að gera úttekt á verkefninu og skipa nefnd sem endurskoði stefnuna frá 1996 og geri tillögu um framhaldið.
Lesa meira
Senda grein