Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.


Fréttaannáll

Breytt útlit á stjórnarráðsvef - 13.12.2005

Að undanförnu hefur verið unnið að því að breyta útliti á vefjum ráðuneytanna. Ekki er um byltingarkenndar breytingar að ræða heldur er byggt á eldra útliti og leiðarkerfi vefjanna látið halda sér. Lesa meira
 

Hvað er spunnið í opinbera vefi? - 12.12.2005

Mynd: Forsíða skýrslu - Hvað er spunnið í opinbera vefi?

Gerð hefur verið úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga en þetta er í fyrsta skipti sem úttekt af þessari stærðargráðu er gerð á Íslandi.

Lesa meira
 

UT-dagurinn 24. janúar 2006 - 5.12.2005

Stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk undir nafninu UT-dagurinn.

Lesa meira
 

Evrópa stefnir á að verða leiðandi í notkun upplýsingatækni í heiminum - 28.11.2005

Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu fer fram dagana 24. og 25. nóvember í Manchester á Englandi.

Lesa meira

 

Ávarp landbúnaðarráðherra á ráðstefnu um Upplýsingatækni í dreifbýli - 21.11.2005

Ávarp landbúnaðarráðherra á ráðstefnu um Upplýsingatækni í dreifbýli sem haldin var í Reykholti 10. nóvember 2005. Lesa meira
 

Ávarp ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Túnis - 21.11.2005

Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneyti, ávarpaði fyrir Íslands hönd leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um upplýsingasamfélagið í Túnis í gær, 17. nóvember. Lesa meira
 

Íslensku fyrirtæki veitt verðlaun á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Túnis - 18.11.2005

Íslensku fyrirtæki, 3-plus, verða veitt verðlaun í nýmiðlunarsamkeppni Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í tengslum við leiðtogafund um upplýsingasamfélagið sem nú stendur yfir í Túnis. Lesa meira
 

Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um upplýsingasamfélagið 16.- 18. nóvember - 18.11.2005

Leiðtogafundur um upplýsingasamfélagið fer fram í Túnis dagana 16. til 18. nóvember 2005. Leiðtogafundurinn er skipulagður af Sameinuðu þjóðunum og Alþjóðafjarskiptastofnuninni ásamt ríkistjórnum Túnis og Sviss. Lesa meira
 

Netspjall – aukin þjónusta hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 10.11.2005

Á vegum félagsmálaráðuneytisins er starfrækt Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna sem er samstarfsverkefni nokkurra aðila. Netspjall er viðbót við þjónustu Ráðgjafarstofunnar. Lesa meira
 

Samskiptatorg félagsmálaráðuneytisins - 10.11.2005

Félagsmálaráðuneytið hefur opnað sérstakt Samskiptatorg. Verkefnið á rætur sínar að rekja til stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið. Lesa meira
 

Norrænar þjónustuveitur - 26.10.2005

Mynd: Frá vöggu til grafar - lífshringur
Dagana 13. – 14. október sl. var haldinn hér á landi fundur norrænu þjóðanna um rafrænar þjónustuveitur.
Lesa meira
 

Rafræn þjónustuveita - Ísland.is - 4.10.2005

Mynd: Rafræn þjónustuveita - forsíða skýrslu
Í maí 2005 kom út skýrsla um stefnumótun fyrir rafræna þjónustuveitu ríkis og sveitarfélaga. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti, og er skýrslan unnin sem lokaverkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, um rafræna þjónustuveitu. Lesa meira
 

Stjórnarráðsvefurinn og aðgengismál - 13.9.2005

Í stefnu ríkisstjórnarinnar Auðlindir í allra þágu segir meðal annars að tryggja verði að rafræn þjónusta opinberra aðila taki mið af þörfum ólíkra hópa, s.s. blindra, sjónskertra og fatlaðra.

Lesa meira
 

Notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti árið 2005 - 24.6.2005

Út er komin ný skýrsla frá Hagstofu Íslands um notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti árið 2005. Lesa meira
 

Lög um rafræna stjórnsýslu ásamt greinargerð - 14.6.2005

Vakin er athygli á því að lög um rafræna stjórnsýslu ásamt greinargerð er hægt að nálgast hér á vefnum. Lesa meira
 

Opinn hugbúnaður - 31.5.2005

Í apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.

Lesa meira
 

Úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga - 15.5.2005

Forsætisráðuneytið, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, vinnur nú að úttekt á vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga. Verkefnið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu sem kom út í mars 2004. Þar eru sett fram markmið um að tekið verði saman yfirlit yfir þá rafrænu þjónustu sem er í boði hjá opinberum aðilum.

Lesa meira
 

Leiðtogafundur um upplýsingasamfélagið - 2. fundur í Túnis 16. -18. nóvember 2005 - 13.5.2005

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að halda tvo leiðtogafundi til að fylgja eftir markmiðum sem sett voru fram í Millenium Declaration. Markmiðið er að leita leiða til að brúa hinu stafrænu gjá milli þróaðra iðnríkja og þróunarlanda, skilgreina pólitísk markmið og leggja til hagnýtar leiðir til að aðstoða þróunarlönd við uppbyggingu á upplýsingatækni og þátttöku í upplýsingasamfélagi.

Lesa meira
 

Erlent samstarf um upplýsingatækni - 6.5.2005

Tekin hefur verið saman skýrsla um upplýsingatæknisamvinnu á vegum ESB. Lesa meira
 

Fjarskiptaáætlun hefur verið gefin út - 12.4.2005

Samgönguráðherra hefur kynnt fjarskiptaáætlun fyrir árin 2005-2010. Lesa meira
 

Skýrsla um þróun og stöðu hátækniiðnaðar á Íslandi - 4.4.2005

Á Iðnþingi 18. mars 2005, var lögð fram skýrsla Samtaka iðnaðarins og iðnaðarráðuneytis um þróun og stöðu hátækniiðnaðar á Íslandi og samanburð við Norðurlönd og Írland.

Lesa meira
 

Tilraunir með vettvang fyrir samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila - 29.3.2005

Forsætisráðuneyti hefur gert samning við félagsmálaráðuneytið og Garðabæ um að þessir aðilar taki að sér að gera tilraunir með umræðutorg í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið.

Lesa meira
 

Ný stefna menntamálaráðuneytis um upplýsingatækni er komin út - 21.3.2005

Menntamálaráðuneytið hefur gefið út nýja stefnu um upplýsingatækni í menntun, menningu og vísindum 2005–2008. Stefnan nefnist Áræði með ábyrgð. Lesa meira
 

Rafrænt umræðutorg - 5.1.2005

Rafrænt umræðutorg, forsíða skýrslu
Í október 2004 kom út skýrsla um rafrænt umræðutorg. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti og er skýrslan unnin sem verkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, sem fjallar um það hvernig auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila, til dæmis með uppsetningu umræðutorga þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni. Lesa meira
 

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica