Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.
Fréttaannáll
Rafræn þjónusta opinberra aðila hefur aukist frá árinu 2005. Nú bjóða 19% stofnana upp á fullkomlega rafræna afgreiðslu erinda en fyrir tveimur árum buðu 3% upp á slíka þjónustu
Lesa meira
Forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa látið gera úttekt á á vefjum 262 stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel þann 13. desember 2007, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar.
Lesa meira
Ráðstefnan fór fram dagana 19. - 21. september 2007 og bar yfirskriftina Hvernig nýta má kosti rafrænnar stjórnsýslu (e. Reaping the Benefits of eGovernment). Markmiðin með ráðstefnunni voru að fara yfir það helsta sem hefur áunnist í rafrænni stjórnsýslu, greiða götu áframhaldandi þróunar og marka stefnu fyrir næstu ár.
Lesa meira
Forsætisráðuneytið, LÍSU samtökin og ePSIplus verkefni Evrópusambandsins héldu hádegisverðarfund miðvikudaginn 5. september 2007 í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku, Bankastræti 2.
Lesa meira
Á tveggja ára fresti standa Sameinuðu þjóðirnar fyrir vef- og margmiðlunarkeppninni World Summit Award. Íslenskt fyrirtæki hefur náð góðum árangri í þessari keppni því á árinu 2005 var fyrirtækið, 3-plus, sem framleiðir leiktækið DVD-Kids fyrir börn einn af 40 vinningshöfunum í keppninni
Lesa meira
Hafin er úttekt sem ætlað er að varpa ljósi á hvernig til hefur tekist með framkvæmd stefnu upplýsingasamfélagsins Auðlindir í allra þágu, á árunum 2004-2007.
Lesa meira
Forsætisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir úttekt á opinberum vefjum á Íslandi. Úttektin hefur farið fram nú í sumar og er niðurstaðna að vænta á haustmánuðum 2007 og verða þær rækilega kynntar.
Lesa meira
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auglýsir nú í þriðja sinn eftir upplýsingum um góð verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu innan ESB og EES.
Lesa meira
Forsætis- og fjármálaráðuneyti standa að undirbúningi UT-dagsins sem haldinn verður 8. mars nk. Lögð verður áhersla á mikilvægi upplýsingatækninnar sem verkfæris til að minnka skriffinnsku, spara tíma og auka hagræði.
Lesa meira
Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneyti fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Nýtum tímann – Notum tæknina í Salnum, Kópavogi, 8. mars nk. kl. 13:00-16:30.
Lesa meira
Senda grein