Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.


Fréttaannáll

Niðurstöður - Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009? - 22.12.2009

Niðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.

Lesa meira
 

Niðurstöður könnunar kynntar 16. desember - 11.12.2009

Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel miðvikudaginn 16. desember 2009, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar. Fundurinn ber yfirskriftina „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?“.

Lesa meira
 

Verkfærakistan verkefni vikunar á epractice.eu - 20.10.2009

Verkfærakistan

Verkfærakista forsætisráðuneytisins hefur verið valin verkefni vikunar á vefnum epractice.eu. Vefurinn epractice.eu er samvinnuvettvangur fyrir alla þá sem vinna að verkefnum í rafrænni stjórnsýslu innan ESB og EFTA.

Lesa meira
 

Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu - 10.9.2009

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu.

Lesa meira
 

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum - 10.9.2009

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.

Lesa meira
 

Fyrirlestrar og myndir frá UT-ráðstefnunni 2009 - 27.5.2009

Í tilefni af degi upplýsingatækninnar 2009, UT-deginum, var haldin ráðstefna 19. maí undir yfirskriftinni: Upplýsingatækni til endurreisnar, Bætt þjónusta - lægri kostnaður. Lesa meira
 

Dagur upplýsingatækninnar - Upplýsingatækni til endurreisnar - Ráðstefna UT-dagsins haldin 19. maí - 13.5.2009

Jóhanna SIgurðardóttir forsætisráðherra ávarpar UT-ráðstefnuna 2009
Dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, verður haldinn þriðjudaginn 19. maí næstkomandi. Af því tilefni er boðað til ráðstefnu þar sem fjallað verður um hvernig upplýsingatæknin geti nýst opinberum stofnunum, fyrirtækjum og almenningi í því endurreisnarstarfi sem fyrir höndum er í íslensku samfélagi. Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni á UT-vefnum - 3.4.2009

Tvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag.

Lesa meira
 

Netríkið Ísland: Sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað - 24.3.2009

Skýrslutæknifélagið og forsætisráðuneyti standa fyrir ráðstefnu á Grand Hótel 2. apríl kl. 12-14. Þar verður kynnt nýtt fræðsluefni á ut-vefnum, annars vegar handbók um opinbera vefi og hins vegar fræðsluefni um stafrænt frelsi.

Lesa meira
 

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica