Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.
Forsætisráðuneytið skipaði í júní sl. vinnuhóp um tilhögun rafrænna samskipta opinberra aðila við einstaklinga og lögaðila. Í mörgum löndum Evrópu hefur verið komið upp rafrænum vettvangi til að halda utan um samskipti opinberra aðila við einstaklinga og lögaðila.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meiraDagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, verður haldinn fimmtudaginn 20. maí næstkomandi. Að þessu sinni verða haldnar tvær ráðstefnur þennan dag og í dagskrárlok verða í fyrsta skipti afhent upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélagsins.
Lesa meira