Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.




Reynslusögur

Reynslusögur um konur í upplýsingatæknistörfum

Í tengslum við ráðstefnu um konur og upplýsingasamfélagið 14. apríl 2000 höfum við tekið saman frásagnir frá konum sem starfa eða eru í námi sem tengist upplýsingatækni á einhvern hátt. Markmiðið með þessum frásögnum er að kynna góðar fyrirmyndir fyrir stúlkur sem íhuga starfsval og gera konur sem starfa og hafa náð árangri á þessu sviði sýnilegar. Lesa meira
 

Anna Kristjánsdóttir

Anna Kristjánsdóttir er prófessor í stærðfræði við Kennaraháskóla Íslands og er sérsvið hennar stærðfræðimenntun. Hún hefur undanfarinn aldarfjórðung unnið margvísleg störf á sviði upplýsingatækni innan menntamála. Innan lands og fjölþjóðlega hefur hún haldið fjölda fyrirlestra, skrifað greinar og gegnt trúnaðarstörfum á þessum vettvangi. Hún er fulltrúi Íslands gagnvart International Federation for Information Processing (IFIP). Lesa meira
 

Anna Melsteð

Anna Melsteð er vefstjóri Ríkisútvarpsins. Hún hefur verið vefstjóri ruv.is frá því sá vefur var settur á laggirnar árið 1996. Frá 1998 hefur hún komið á fót Passíusálmavefnum, Íslandssöguvefnum og Vitanum fyrir Ríkisútvarpið en vef Landssamtaka lífeyrissjóða, leikhópsins Á senunni og fleirum á eigin vegum. Anna lætur af störfum sem vefstjóri RÚV 1. júní n.k. og snýr sér þá að eigin rekstri á sviði margmiðlunar. Anna hefur verið gestafyrirlesari hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og hún situr einnig í stjórn Margmiðlunarskólans fyrir hönd Rafiðnaðarsambands Íslands. Lesa meira
 

Anna Ólafsdóttir

Anna Ólafsdóttir er verkefnisfreyja hjá Menntasmiðju kvenna á Akureyri. Hún kennir einnig námsefnisgerð fyrir vef í kennaradeild Háskólans á Akureyri. Anna er tónmenntakennari og hefur stýrt tónlistarskóla á Vopnafirði, haft umsjón með tölvuskóla Framtíðarbarna á Akureyri og lokið fjarnámi í tölvu- og upplýsingatækni við KHÍ. Lesa meira
 

Anna Ólafsdóttir Björnsson

Anna Ólafsdóttir Björnsson vinnur núna jöfnum höndum að sagnfræðirannsóknum og meistaragráðu í tölvunarfræði. Hún hefur starfað sem blaðamaður og verið þingmaður. Lesa meira
 

Dóra Fjölnisdóttir

Dóra Fjölnisdóttir er nemi á öðru ári í kerfisfræði við Háskólann í Reykjavík. Lesa meira
 

Ebba Þóra Hvannberg

Ebba Þóra Hvannberg lauk doktorsprófi í tölvunarfræðum 1988. Hún er dósent við tölvunarfræðiskor í Háskóla Íslands og tekur þátt í mörgum innlendum og erlendum rannsóknarverkefnum.
Háskólakennari í tölvunarfræðiskor. Lesa meira
 

Eygló Björnsdóttir

Eygló Björnsdóttir er bekkjar- og tölvukennari við Barnaskóla Vestmannaeyja. Lesa meira
 

Guðrún Magnúsdóttir

Guðrún Magnúsdóttir er forstjóri ESTeam AB og hefur lengi unnið við Gautaborgarháskóla að vísindaverkefnum og við kennslu í tungumálaverkfræði. Hún hefur metið vísindaverkefni fyrir bæði Efnahagsbandalagið og Bandaríkin (DARPA) í tungumálaverkfræði. Hún hefur talað sem "invited speaker" á mörgum alþjóðlegum ráðstefnum um allan heim. Lesa meira
 

Gyða Guðjónsdóttir

Gyða Guðjónsdóttir er nemandi á þriðja ári í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Hún er kennaramenntuð og hefur unnið við netráðgjöf og notendaþjónustu hjá Íslenska menntanetinu. Lesa meira
 

Helga Kristín Gunnarsdóttir

Helga Kristín Gunnarsdóttir stundar nú nám í leiklist í London. Hún hefur verið blaðamaður á veftímaritinu deCode og vefhönnuður hjá Gæðamiðlun og OZ. Lesa meira
 

Hólmfríður Ólafsdóttir

Hólmfríður Ólafsdóttir er tölvukennari og netstjóri í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Lesa meira
 

Hólmfríður Pálsdóttir

Hólmfríður Pálsdóttir er með meistaragráðu í tölvunarfræði og vinnur sem þjónustu- og verkefnisstjóri í Orkudeild Tölvumynda ehf en sú deild sérhæfir sig í að framleiða hugbúnað fyrir orkufyrirtæki hérlendis og erlendis. Lesa meira
 

Hilda Torfadóttir

Hilda Torfadóttir er tölvukennari við Síðuskóla á Akureyri. Hún er menntuð sem tal- og sérkennari og stundar núna framhaldsnám í upplýsingatækni. Hilda er einn af stjórnendum í Kidlink sem er alþjóðlegt tölvusamskiptaverkefni fyrir börn. Lesa meira
 

Jóna Pálsdóttir

Jóna Pálsdóttir starfar að íslenskum og norrænum verkefnum sem snúa að upplýsingatækni í skólastarfi og breyttu hlutverki kennarans. Hún hefur kennt íslensku í menntaskólastigi, bæði á hefðbundinn hátt og gegnum fjarkennslu. Jóna var kennslustjóri hjá Íslenska menntanetinu. Lesa meira
 

Kristín Guðmundsdóttir

Kristín Guðmundsdóttir stundar framhaldsnám í tölvu- og upplýsingatækni. Hún hefur unnið við tölvukennslu og tölvuleiðsögn í meira en áratug og er einnig með sjálfstæðan rekstur í vefsíðugerð og vefumsjón. Kristín og dóttir hennar Sesselja G. Vilhjálmsdóttir reka saman vefsetrið www.konur.is sem sérhæfir sig í efni fyrir konur. Lesa meira
 

Kristrún Gunnarsdóttir

Kristrún Gunnarsdóttir er þessa dagana hönnuður og forritari Sagnanetsins sem er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, bókasafnsins við Cornell háskóla og stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi og fjallar um að ná saman í einn gagnagrunn 3-400 þúsund blaðsíðum úr bókum og handritum og gera aðgengilegt á fjarskiptaneti. - Hún hefur um nokkurra ára skeið unnið við hönnun og hugmyndavinnu í tengslum við gagnvirk samskipti og stafræna hermun en baksviðið er fyrst og fremst fagurlistir, kenningar um miðlun og almenna merkjafræði (semiotics) og svo heimspeki. Lesa meira
 

Kristín Ósk Hlynsdóttir

Kristín Ósk Hlynsdóttir er vefstjóri hjá Glitni og stundar framhaldsnám í upplýsingastjórnun í fjarnámi við breskan háskóla. Hún hefur unnið að ýmsu sem tengist Internetinu. Lesa meira
 

Lára Stefánsdóttir

Lára Stefánsdóttir stýrir tölvudeild Menntaskólans á Akureyri sem er þróunarskóli í upplýsingatækni. Hún hefur verið tölvukennari og tók þátt í að stofna Íslenska menntanetið og starfaði þar. Lára hefur stýrt mörgum alþjóðlegum verkefnum á sviði tölvusamskipta m.a. Kidlink og haldið fyrirlestra og námskeið víða um heim. Lesa meira
 

Laufey Ása Bjarnadóttir

Laufey Ása Bjarnadóttir starfar sem ráðgjafi í upplýsingatækni hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni. Hún er tölvunarfræðingur og hefur lokið MBA námi í viðskiptafræðum. Lesa meira
 

Laufey Vilhjálmsdóttir

Laufey Vilhjálmsdóttir er nemi á tölvunarfræðibraut í Háskólanum í Reykjavík. Lesa meira
 

Laura Valentino

Laura Valentino starfar hjá Taugagreiningu sem grafískur hönnuður og hannar viðmót á tölvukerfi (GUI designer). Laura hefur einnig unnið sjálfstætt við vefsíðugerð og ýmiss konar grafísk hönnunarverkefni fyrir tölvur. Lesa meira
 

Margrét Dóra Ragnarsdóttir

Margrét Dóra Ragnarsdóttir vinnur hjá OZ við allt sem viðkemur samskiptum manns og tölvu í því sem fyrirtækið framleiðir. Hún lauk háskólanámi í sálfræði og stundar nú framhaldsnám í tölvunarfræði. Margrét Dóra hefur verið virkur netverji í mörg ár. Hún hefur mikinn áhuga á gervigreind. Lesa meira
 

Rósa María Ásgeirsdóttir

Rósa María Ásgeirsdóttir er nemi á öðru ári við Háskólanum í Reykjavík. Lesa meira
 

Salvör Gissurardóttir

Salvör Gissurardóttir er deildarsérfræðingur hjá Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið í forsætisráðuneytinu. Hún hefur undanfarinn áratug verið lektor við Kennaraháskóla Íslands í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu. Salvör er viðskiptafræðingur og hefur lokið meistaranámi í kennslutækni, námsgagnagerð og notkun tæknimiðla í námi og kennslu. Hún var tölvukennari við FÁ og FB og námstjóri í menntamálaráðuneytinu. Hún hefur samið og gefið út ýmis konar námsefni um tölvur, síðustu árin að mestu leyti á vef.
Lesa meira
 

Sigrún Guðjónsdóttir

Sigrún Guðjónsdóttir er arkitekt og stundaði nám í Þýskalandi. Lokaverkefni hennar þar var hönnun á þrívíðum háskólaheim fyrir Netið. Sigrún vinnur núna í Sviss við forritun og hönnun á sviði upplýsingaarkitektúrs. Lesa meira
 

Sigrún Gunnarsdóttir

Sigrún Gunnarsdóttir vinnur hjá rannsóknardeild Landssíma Íslands. Hennar sérsvið er notkun upplýsingatækni við nám. Hún lauk meistaragráðu í tölvunarfæðum vorið 1995 og hefur starfað við hugbúnaðargerð og rannsóknarvinnu tengdri fjarskipta- og upplýsingatækni. Lesa meira
 

Sólveig Jakobsdóttir

Dr. Sólveig Jakobsdóttir er dósent við Kennaraháskóla Íslands og hefur umsjón þar með framhaldsnámsbraut í tölvu- og upplýsingatækni. Doktorsritgerð hennar fjallaði um tölvumenningu skóla og tölvutengdan kynjamun. Lesa meira
 

Takako Inaba Jónsson

Takako Inaba Jónsson er forstöðumaður tölvusviðs Byggðastofnunar. Lesa meira
 

Þórunn Elva Guðjohnsen

Þórunn Elva Guðjohnsen er þróunarstjóri Hans Petersen hf. Hún er stúdent frá M.R. 1984 og rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1988. Þórunn Elva starfaði sem rekstrarráðgjafi hjá Ráðgarði áður en haldið var til Bandaríkjanna 1993. Þar rak hún miðvesturríkjaskrifstofu ráðgjafafyrirtækisins “The Human Touch Consulting”, þar til snúið var til baka til Íslands í október 1999. Þórunn Elva er einstæð móðir með fjögur börn á aldrinum tveggja til tíu ára. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica