Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.


Um ráðstefnuna

Kynning á ráðstefnunni

Ráðstefnan Konur og upplýsingasamfélagið var haldin þann 14. apríl árið 2000.

Að henni stóðu:

Yfirmarkmið ráðstefnunnar var að stuðla að fjölgun kvenna í störfum í upplýsingaiðnaði og aukinni þátttöku kvenna í mótun upplýsingasamfélagsins.

Aðstandendur ráðstefnunnar telja að vinna þurfi markvisst að því að:

  • Auka hlut kvenna í tækninámi – ekki síst í námi í tölvunarfræði, verkfræði og kerfisfræði því þar eru konur í miklum minnihluta.
  • Vekja athygli foreldra og kennara á mikilvægi þess að virkja áhuga stúlkna á upplýsingatækni og skapa stúlkum ekki síðri möguleika en drengjum á heimilum og í skólum.
  • Breyta ímynd upplýsingaiðnaðarins með því að draga fram í dagsljósið að störf á þessu sviði henta konum alls ekki síður en körlum. Draga fram þætti sem höfða til stúlkna og kynna skipulega t.d. í námsráðgjöf og fjölmiðlum.
  • Í boði verði aukið efni á vef sem höfðar sérstaklega til stúlkna og hvetur þær til virkrar þátttöku í upplýsingasamfélaginu.
  • Safnað verði saman áhugaverðum niðurstöðum um kynjafræðilegar rannsóknir sem stundaðar hafa verið á þessu sviði hér á landi og erlendis og þær kynntar.
  • Gerðar verði kynjafræðilegar rannsóknir á þessu sviði hér á landi.
  • Umræða um þátt kvenna í upplýsingasamfélaginu verði aukin.

Vefur:

Í tengslum við ráðstefnuna hefur verið settur upp þessi vefur þar sem finna má upplýsingar um ráðstefnuna og efni henni tengt.

Vakin er athygli á því að í tengslum við ráðstefnuna hefur verið safnað reynslusögum kvenna sem stunda nám eða vinna við upplýsingatækni. Þessar reynslusögur skipta tugum og er hægt að nálgast þær hér á vef ráðstefnunnar. Nokkur sýnishorn er að finna í ráðstefnumöppunni.

Tölfræðilegar upplýsingar:

Einnig hafa verið teknar saman fjölbreyttar upplýsingar um hlut kvenna á hinum ýmsu sviðum upplýsingasamfélagsins.

Opnum umræðuna:

Hvernig væri að ræða við foreldra og kennara í ykkar umhverfi um það hvar tölvan á heimilinu er staðsett, hvort foreldrar gefi stúlkum ekki tölvubúnað til jafns við drengi, hvort ekki sé þörf á því að hvetja stúlkurnar sérstaklega á þessu sviði og kynna fyrir þeim þau fjölbreyttu, áhugaverðu og vellaunuðu störf sem bíða þeirra sem afla sér menntunar á sviði upplýsingatækni.

Hvernig væri að benda fyrirtækjum, sem sárvantar starfskrafta með þekkingu á upplýsingatækni, á það að mótun fjölskyldustefnu þar sem hugað er að því hvernig best megi samræma þarfir fjölskyldu og vinnu - getur stuðlað að ráðningu fleiri hæfileikakvenna á þessu sviði.

Það er von okkar að ráðstefnan og vefurinn sem settur hefur verið upp verði til þess að opna umræðu um þátt kvenna í upplýsingasamfélaginu og hvetji konur til að afla sér menntunar á sviði upplýsingatækni.

F.h. undirbúningshóps,

Guðbjörg Sigurðardóttir
formaður Verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið


Þetta vefsvæði byggir á Eplica