Ýmsar tölulegar upplýsingar um hlut kvenna
Notkun tækninnar í námi
Vissir þú ...
- að nýlegar, innlendar og erlendar rannsóknir staðfesta að verulegur munur er á því hvernig stúlkur og piltar nota upplýsingatækni innan sem utan skólans. Stúlkur nota tölvur helst til rit- og gagnavinnslu á meðan piltar ganga mun lengra og vinna með tölvugrafík, vefnað, forritun og því um líkt. Þetta kemur fram í grein Dr. Sólveigar Jakobsdóttur um kynja- og aldursmun nemenda í tölvutengdri færni.
Vissir þú...
- að mismunandi kynni drengja og stúlkna af tölvum og munur á viðhorfum kynjanna til upplýsingatækni í skólum færist yfir í starfstengt námsval og á vinnumarkað. Á vinnumarkaði er í margfalt meiri mæli en áður krafist hæfni og góðrar kunnáttu í upplýsingatækni umfram hefðbundinnar ritvinnslu og gagnavinnslu. Fyrir slík störf verða greidd hærri laun en fyrir störf þar sem þessarar hæfni er ekki krafist. Líklegt er að kynjamunur í upplýsingatækni muni leiða til efnahagslegs mismunar milli kynjanna, enn frekari en nú er eða a.m.k. festa hann í sessi ef ekkert verður að gert.
Atvinnulíf og félög
Vissir þú
- að upplýsingaiðnaðurinn skapar u.þ.b. 4000 vel launuð störf fyrir vel menntað fólk.
- að á heimasíðu Samtaka Upplýsingatækniiðnaðarins www.ut.is eru athyglisverðar tölulegar upplýsingar um störf sem UT-iðnaðurinn skapar. Þær eru ekki greindar eftir kyni. Þar eru birtar meðaltalstölur fyrir dagvinnu árið 1998 og höfðu sérfræðingar á tölvusviði að meðaltali 273 þús. í dagvinnulaun.
- að þróun starfa í tölvu- og upplýsingatækni var viðfangsefni síðasta Iðnþings. Þar var engin kona (að frátöldum viðskiptaráðherra) á meðal ræðumanna. (Sjá:www.si.is )
Vissir þú
- að Skýrslutæknifélag Íslands hefur frá upphafi verið fagfélag þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni. Í dag eru fullgildir félagsmenn alls 771, þar af 141 kona eða 18,29%. Árið 1993 voru konur um 14% félagsmanna.
- að á fundum og ráðstefnum um nýjungar og/eða almenna notkun upplýsingatækni sem Skýrslutæknifélagið gengst fyrir voru ráðstefnugestir þessa vetrar alls 775, þar af 187 konur eða 24,13%. (Sjá: www.sky.is)
- að þegar menntamálaráðherra afhenti fyrstu 18 Tölvuökuskírteinin (TÖK) 8.febrúar 2000, var aðeins ein kona í hópi skírteinishafa. TÖK skírteini votta hæfni í grundvallaratriðum upplýsingatækni, votta að viðkomandi hafi TÖK á tölvutækni, http://www.sky.is/TOKyfirl.htm.
Vissir þú
- að á félagaskrá Félags tölvunarfræðinga eru skráðir félagar samtals 426. Karlar eru 345 og konur 81 eða 19%. Konur eru flestar í árgöngum sem fæddir eru 1963-1966 (karlar eru einnig flestir í þeim árgöngum). Engar konur fæddar á árunum 1968, 1969 og 1971 eru skráðar í félagið.
Úr félagaskrá Félags tölvunarfræðinga:
| Fæðingarár | Karl | Kona | Samtals |
|---|---|---|---|
|
37 |
1 |
0 |
1 |
|
42 |
0 |
2 |
2 |
|
43 |
0 |
1 |
1 |
|
45 |
1 |
0 |
1 |
|
46 |
1 |
0 |
1 |
|
49 |
2 |
2 |
4 |
|
51 |
1 |
0 |
1 |
|
53 |
2 |
0 |
2 |
|
54 |
2 |
3 |
5 |
|
55 |
6 |
3 |
9 |
|
56 |
2 |
1 |
3 |
|
57 |
6 |
4 |
10 |
|
58 |
11 |
3 |
14 |
|
59 |
12 |
5 |
17 |
|
60 |
17 |
5 |
22 |
|
61 |
24 |
4 |
28 |
|
62 |
22 |
3 |
25 |
|
63 |
31 |
7 |
38 |
|
64 |
20 |
10 |
30 |
|
65 |
24 |
8 |
32 |
|
66 |
26 |
6 |
32 |
|
67 |
12 |
2 |
14 |
|
68 |
15 |
0 |
15 |
|
69 |
18 |
0 |
18 |
|
70 |
12 |
2 |
14 |
|
71 |
12 |
0 |
12 |
|
72 |
18 |
1 |
19 |
|
73 |
17 |
3 |
20 |
|
74 |
15 |
2 |
17 |
|
75 |
9 |
2 |
11 |
|
76 |
6 |
2 |
8 |
|
Alls: |
345 |
81 |
426 |
Vissir þú
- að undanfarin 5 ár hefur kjarakönnun Félags tölvunarfræðinga sýnt að konur hafa haft um 80% af heildarlaunum og um 90% af föstum launum karla.
Vissir þú
- að í félaginu Upplýsingu - Félagi bókasafns- og upplýsingafræða eru 458 konur og 51 karlar.
Skólar
Vissir þú
- að Háskóli Íslands (www.hi.is) hefur frá upphafi (1978) brautskráð 427 nemendur með B.S.-próf í tölvunarfræði. Brautskráðir karlar eru 348 og konur 79 eða 18,5%.
- að stúdentar í tölvunarfræðiskor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands eru skólaárið 1999-2000 alls 239. Karlar eru 192, konur 47 eða 24%.
- að þegar nöfn þeirra sem einhvern tíma hafa skráð sig í tölvunarfræði við HÍ eru talin, hvort sem þeir hafa aldrei látið sjá sig, eða lokið fleiri eða færri námskeiðum og hætt eða lokið náminu og brautskráðst kemur í ljós að þetta eru 1303 einstaklingar, þar af 317 konur eða 24%.
Vissir þú
- að bókasafnsfræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands síðan 1956 en innan félagsvísindadeildar frá 1976. Nú heitir greinin bókasafns- og upplýsingafræði.
- að konur hafa jafnan verið í meirihluta í þessu námi og nú eru skráðir 102 nemar í bókasafns- og upplýsingafræði við HÍ. Þar af eru 93 konur en 9 karlar.
Vissir þú
- að Háskólinn á Akureyri (www.unak.is) hefur síðan haustið 1998 boðið nám í tölvu- og upplýsingatækni við rekstrardeild skólans og nú eru 8 nemendur í námi á fyrsta ári , 5 karlar og 3 konur. Á 2. ári eru 6 nemendur í námi 3 konur og 3 karlar.
- að konur eru í meirihluta í rekstrardeild skólans en ekki í tölvu- og upplýsingatæknideildinni.
Vissir þú
- að Kennaraháskóli Íslands (www.khi.is) býður upp á framhaldsnám í tölvu- og upplýsingatækni. Samkvæmt nemendayfirliti 1998-1999 hófu 17 nemendur nám haustið 1998, 3 karlar og 14 konur. Af þeim útskrifuðust allir karlarnir og 11 konur og af þessum hópi héldu 6 konur áfram í enn frekari framhaldsnámi við KHÍ.
- að haustið 1999 hófu 36 nemendur nám í þessu námskeiði, 23 konur og 13 karlar.
Vissir þú
- að í Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum (www.ntv.is) sem starfar bæði í Kópavogi og í Hafnarfirði eru í gangi átta bekkir í heilsársnámi í forritun og kerfisfræði. Þar eru samtals 102 nemendur þar af 8 konur.
- að skólinn býður upp á sérstök alþjóðleg námskeið sem veita réttindi sem kallast TÖK - Tölvuökuskírteini. Í mars 2000 höfðu: 6 karlmenn og 1 kona lokið prófi og hafa fengið skírteinið. Í próftökum nú eru 5 nemendur - 1 karlmaður og 4 konur.
Vissir þú
- að á haustönn 1999 innrituðust 150 nemendur í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík (www.ru.is) og voru 72% karlar og 28% konur.
- að á 2. ári eru 90 nemendur 70% karlar og 30% konur og á 3 ári eru 30 nemendur 90% karlar og 10% konur.
- að um vorið 1999 voru útskrifaðir 56 kerfisfræðingar þar af 11 konur eða 20%.
- að tölvunarfræðideild HR er að stofni til Tölvuháskóli VÍ, sem starfræktur var í tíu ár. Við skoðun á nemendafjölda í Tölvuháskóla VÍ og svo HR kemur í ljós að TVÍ útskrifaði á árunum 1988-1998 samtals 302 nemendur og lengst var hlutur kvenna þar 16% - 19%.
Vissir þú
- að frá 1997 hefur 131 nemandi stundað nám í tölvudeild Viðskipta- og tölvuskólans, þ.e. 67 karlar og 64 konur.
Vissir þú
- að Rafiðnaðarskólinn (www.raf.is) hefur boðið uppá námsbrautir sem eru 120 - 1040 kennslustundir að lengd. Útskrifaðir nemendur á árinu 1999 eru u.þ.b.:
- Tölvu- og rekstrarnám 35 konur og 34 karlar
- Tölvur og vinnuumhverfi 53 konur og 8 karlar
- Margmiðlun 23 konur og 50 karlar
- Margmiðlun Pro 1 kona og 8 karlar
- Vefsíðugerð 14 konur og 41 karl
- Umsjón og rekstur tölvukerfa 2 konur og 24 karlar
- Á árinu 2000 hafa 26 útskrifast úr kerfisfræði - þarf af 1 kona.
- að í Margmiðlunarskólanum(www.mms.is) sem er nýstofnaður hófu 112 manns nám núna í janúar. Konur í Margmiðlunar- og þrívíddarnámi, sem er tveggja anna nám, eru 14 og í vefsíðunámi sem er einnar annar nám eru 13 konur.
Vissir þú
- að Tölvuskóli Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar (http://www.tv.is) hefur boðið uppá 1 árs kerfisfræðinám. Nú eru 13 nemendum í námi - allt karlar. Engin kona sótti um.
- Einnig býður skólinn uppá hálfs árs netnám. Nú eru samtals 24 nemendum í kerfisfræðinámi - þar af er ein kona.
Vissir þú
- að frá vorönn 1989 fram til dagsins í dag hafa útskrifast 37 konur og 116 karlar af Tölvufræðibraut Iðnskólans í Reykjavík (http://www.ir.is). Konur eru því með um 25% hlutdeild.
Ýmsar kannanir
Niðurstöður úr Internetkönnun frá september 2000
Verkefnið Konur til forystu og jafnara námsval kynjanna- Átaksverkefni Háskóla Íslands og Jafnréttisráðs var kynnt á fundi í október 2000. Sjá nánar á vef verkefnisins. og á vefsíðu jafnréttisnefndar Háskóla Íslands Tölur úr heimi jafnréttismála.
Þar komu fram eftirfarandi upplýsingar.
Vissir þú að:
- við verkfræðideild Háskóla Íslands stunda samtals 778 nemendur nám en þar af eru konur 173 talsins eða aðeins 22,2%.
- af 302 nemendum í tölvunarfræðiskor við Háskóla Íslands eru 69 konur þ.e. 19% nemenda.
- í rafmangs- og tölvurverkfræði er hlutfall kvennemenda 12% en við skorina nema19 konur og 136 karlar.
- hlutur kvenna í verk- og tæknifræðinámi af nemendum skráðum á háskólastig hefur lítið aukist síðastliðin tuttugu ár þrátt fyrir stóraukna sókn kvenna í háskólanám.
- af 131 fastráðnum kennara við raunvísinda- og verkfræðideild eru 20 kvenkennarar eða 15%
- af 22 prófessorum við verkfræðideild er aðeins ein kona eða 4,5%
- af 28 prófessorum við raunvísindadeild eru aðeins þrjár konur eða 11%.
- af 10 dósentum við verkfræðideild eru þrjár konur eða 30%.
- af 30 dósentum við raunvísindadeild eru sex konur eða 20%.
- af 426 félögum í Félagi tölvunarfræðinga er 81 kona eða 19%
- í Verkfræðingafélagi Íslands eru konur 6% félagsmanna.
- Skv. könnun Félagsvísindastofununar auka konur laun sín um 42,5 % með háskólanámi en karlar auka sín laun um 104%
- árið 1998 voru konur rúm 9% stjórnarmanna í fimmtíu stærstu fyrirtækjum landsins. Af 52 stjórnarmönnum í 10 stærstu fjármálafyrirtækjum landsins voru aðeins 6 konur eða 12%.
- Meðal 200 tekjuhæstu stjórnenda fyrirtækja á lista frjálsrar verslunar fyrir árið 1999 eru 9 konur.
- Meðal 100 tekjuhæstu stjórnenda fjármálafyrirtækja eru aðeins 3 konur.
