Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.


Sögulegt efni

Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið 1997 - 2003

Í október 1996 gaf ríkisstjórn Íslands út ritið "Framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið". Í ritinu kemur fram sá ásetningur að upplýsingatæknin verði sem best nýtt til að tryggja vaxandi hagsæld í landinu svo unnt verði að halda uppi velferðarkerfi og menningarstigi eins og best gerist. Þessi ásetningur kemur vel fram í yfirmarkmiði framtíðarsýnarinnar sem hljóðar svo:

Íslendingar verði í fararbroddi þjóða heims við nýtingu upplýsingatækni í þágu bætts mannlífs og aukinnar hagsældar.

Til þess að koma stefnu ríkisstjórnarinnar í framkvæmd var sett á stofn þróunarverkefni um íslenska upplýsingasamfélagið. Verkefnið stóð yfir frá 1. september 1997 til 28. febrúar 2003 og miðaði að því að koma stefnu og framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið í framkvæmd. Í október 1997 tók til starfa verkefnisstjórn sem stýrði verkefninu fyrir hönd forsætisráðuneytis þar til því lauk í febrúar 2003.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica