Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.
Útgefið efni
Gerð hefur verið úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga en þetta er í fyrsta skipti sem úttekt af þessari stærðargráðu er gerð á Íslandi.
Lesa meira
Kynnt á ráðstefnu um Upplýsingatækni í dreifbýli í Reykholti 10. nóvember 2005
Lesa meira
Í maí 2005 kom út skýrsla um stefnumótun fyrir rafræna þjónustuveitu ríkis og sveitarfélaga. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti, og er skýrslan unnin sem lokaverkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, um rafræna þjónustuveitu.
Lesa meira
Í apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.
Lesa meira
Síðastliðinn laugardag kynnti samgönguráðherra fjarskiptaáætlun til næstu 5 ára.
Lesa meira
Í október 2004 kom út skýrsla um rafrænt umræðutorg. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti og er skýrslan unnin sem verkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, sem fjallar um það hvernig auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila, til dæmis með uppsetningu umræðutorga þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni.
Lesa meira
Senda grein