Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.


Útgefið efni

Niðurstöður - Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009? - 22.12.2009

Niðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.

Lesa meira
 

Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu - 10.9.2009

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu.

Lesa meira
 

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum - 10.9.2009

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.

Lesa meira
 

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum - 10.9.2009

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.

Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni á UT-vefnum - 3.4.2009

Tvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag.

Lesa meira
 

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica