Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meira