Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meiraNiðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.
Lesa meiraPricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu.
Lesa meiraRíkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.
Lesa meiraRíkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.
Lesa meiraTvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag.
Lesa meiraRíkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.
Lesa meiraVerkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu í forsætisráðuneyti vann að mótun stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað. Stuðst var meðal annars við skýrslu um opinn hugbúnað sem gerð var fyrir forsætisráðuneytið 2005, stefnur annarra þjóða og margvíslegt efni frá Evrópusambandinu. Haft var samráð við hagsmunaaðila og var stefnan síðan samþykkt í verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna 11. mars 2008.
Lesa meiraGerð hefur verið úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga en þetta er í fyrsta skipti sem úttekt af þessari stærðargráðu er gerð á Íslandi.
Lesa meiraÍ apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.
Lesa meiraEinstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið. Í henni segir m.a. að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun.
Lesa meiraSamantekt á ensku um stöðu íslenska upplýsingasamfélagsins á árinu 2003.
Lesa meiraForsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á þróunarverkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið sem ráðuneytið hefur stýrt frá árinu 1997. Úttektina framkvæmdi PWC Consulting, nú IBM Business Consulting Services, og liggja niðurstöður nú fyrir.
Lesa meiraListi yfir rit sem fjalla um eða tengjast framkvæmd stefnu stjórnvalda um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraInternetkönnun gerð af PWC í mars 2001 sýndi að 67,8% hafa aðgang að tölvu með Interneti á heimili, 41,1% á vinnustað og 17,7% í skóla. 23,1% hafa ekki aðgang að tölvu með Interneti .
Lesa meiraNiðurstöður rannsóknar um aðgang að Interneti í mars og apríl 2001 sem PricewaterhouseCoopers vann fyrir Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraNiðurstöður rannsóknar um aðgang að Interneti í september árið 2000 sem PricewaterhouseCoopers vann fyrir Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraInternetkönnun sem unnin var af PWC í september 2000 sýndi að 64,7% höfðu aðgang að tölvu með Interneti á heimilum, 41,2% á vinnustöðum og 17,9% í skóla. 22,2% höfðu ekki aðgang að tölvu með Internettengingu.
Lesa meiraVinnuáætlun um þróun rafrænna viðskipta og rafrænnar stjórnsýslu 2000-2002.
Lesa meiraAð tilstuðlan verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið, sem starfar á vegum forsætisráðuneytis, svo og samgönguráðuneytis og RUT-nefndar hefur verið gerð úttekt á flutningsgetu fjarskiptakerfisins.
Lesa meiraSkýrsla um notkun upplýsingatækni við fjarvinnslu og gagnavinnslu á landsbyggðinni.
Lesa meiraSkýrsla frá norrænni embættismannaráðstefnu um upplýsingatæknimál sem haldin var í Reykjavík 22. júní 1999.
Lesa meiraFramkvæmd stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið - Stöðuskýrsla 1998
Lesa meiraGreinargerð nefndar um hugbúnaðargerð ríkisins ásamt útgefnu efni RUT-nefndar o.fl.
Lesa meiraStefna ríkisstjórnar Íslands í málefnum upplýsingasamfélagsins
Lesa meira