Í gær var birt Stöðuskýrsla Ísland 2009, sem forsætisráðuneytið fól Félagsvísindastofnun og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að taka saman í júní sl. Í skýrslunni er gefin mynd af þróun íslensk samfélags síðastliðin 20 ár.
Lesa meiraPricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu.
Lesa meiraRíkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn.
Lesa meiraNefnd sem forsætisráðherra skipaði hefur skilað af sér áfangaskýrslu þar sem fjallað er um starfsemi Heyrnleysingjaskólans 1947-1992, vistheimilisins Kumbaravogs 1965-1984 og skólaheimilisins Bjargs 1965-1967. Í skýrslunni er lýst starfsemi viðkomandi stofnana, tildrögum þess að börn voru þar vistuð, opinberu eftirliti með starfseminni og leitast við að staðreyna hvort börn hafi sætt þar illri meðferð eða ofbeldi.
Lesa meiraRíkisstjórn Íslands ákvað í nóvember 2008 að biðja reyndan bankaeftirlitsmann að leggja mat á lagaumhverfi og framkvæmd fjármálaeftirlits á Íslandi og gera tillögur um nauðsynlegar úrbætur, en matið er hluti af samkomulagi stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).
Lesa meira