Auglýsing landafundanefndar eftir umsóknum um styrki
Hátíðahöld í Vesturheimi árið 2000
Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögu til ríkisstjórnar um hvernig fagna skuli landafundum Leifs Eiríkssonar í Bandaríkjunum og Kanada árið 2000.
Nefndin lýsir hér með eftir hugmyndum að einstökum verkefnum og atburðum, sem líklegar eru til að auka hróður Íslands í Vesturheimi og halda á lofti sögu landafundanna.
Tillögur skulu berast til nefndarinnar fyrir 1. mars nk. og vera skriflegar.
Landafundanefnd,
Hallveigarstöðum,
Túngötu 14,
101 Reykjavík.
Sími 563 7020, fax 563 7025.
Netfang: millennium hjá for.stjr.is

