Norðurbryggja í Kaupmannahöfn - Norrænt setur
Helgað menningu Íslands, Færeyja og Grænlands
Það efni sem hér er að finna byggir á kynningarbæklingi um endurbyggingu Norðurbryggju. Útgefið af árið 2001 af forsætisráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Sjá einnig heimasíðu Norðurbryggju www.bryggen.dk.
Á Norðurbryggju í hjarta Kaupmannahafnar
Gamla hafnarsvæðið í hjarta Kaupmannahafnar var um margra alda skeið miðstöð verslunar og viðskipta á Norður-Atlantshafi og áfangastaður Íslendinga þegar haldið var utan.
Um áratuga skeið hefur þetta sögufræga athafnasvæði legið í dvala. Brátt vaknar svæðið til lífs á ný. Þar verður sköpuð umgjörð fyrir blómlegt starf, sem miðar að því að efla samstarf Íslands, Danmerkur, Færeyja og Grænlands. Löndin fjögur hafa sameinast um að endurreisa eitt elsta og fegursta pakkhúsið á hafnarsvæðinu.
Þar verður einnig nýtt aðsetur sendiráðs Íslands í Danmörku.


