Skýrslur og annað útgefið efni

Gjaldtaka í þágu hagsmunasamtaka og stjórnarskráin

12.12.2006

Starfshópur ráðuneytanna hefur skilað skýrslu um lögbundna gjaldtöku í þágu hagsmunasamtaka og félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Var starfshópnum komið á fót í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis þar sem fram kom að verulegur vafi léki á því hvort tilhögun 6. og 8. gr. laga nr. 24/1986 um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, sem tryggir Landssambandi smábátaeigenda rekstrarfé, uppfyllti kröfur 74. gr. stjórnarskrárinnar um félagafrelsi. Í skýrslunni er fjallað um hvaða úrbætur þurfi hugsanlega að gera á löggjöf í kjölfar álits umboðsmanns varðandi greiðslumiðlun í sjávarútvegi, búnaðargjald og tryggingagjald.

Lögbundin greiðsluskylda til hagsmunasamtaka og félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar (PDF)



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica