Hoppa yfir valmynd
19. maí 2010 Forsætisráðuneytið

Skýrsla verkefnisstjóra þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálfta á Suðurlandi í maí 2008

Þjónustumiðstöð vegna jarðskjálfta á Suðurlandi í maí 2008 var komið á fót á fyrstu dögum eftir skjálftann og var starfrækt til ársloka 2009. Meðfylgjandi skýrsla er skrifuð til þess að geyma heimildir um starfið og til þess að vera til hliðsjónar næst þegar koma þarf upp þjónustumiðstöð vegna hamfara. Skýrslunni er í meginatriðum skipt í tvennt. Annars vegar er fjallað um rekstur þjónustumiðstöðvarinnar og hins vegar eru tillögur um úrbætur, aðallega varðandi styrki vegna tjóna. Höfundur skýrslunnar er Ólafur Örn Haraldsson, verkefnisstjóri  þjónustumiðstöðvarinnar.

Skýrsla verkefnisstjóra þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálfta á Suðurlandi í maí 2008

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum