Einfaldara Ísland

Einfaldara Ísland var aðgerðaáætlun sem hafði það að markmiði að einfalda og bæta regluverk í þágu atvinnulífs og almennings. Áætlunin gilti fyrir árin 2006-2009 og byggði á tillögum starfshóps með fulltrúum ráðuneyta, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins. Aðgerðaáætlunin beindist bæði að tilurð nýrra opinberra reglna og skipulegri yfirferð yfir gildandi reglur.

Einfaldara Ísland


Fréttir af aðgerðaáætluninni Einfaldara Ísland

Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa

20.12.2007

Komin er út á vegum forsætisráðuneytisins, dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og skrifstofu Alþings handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa. Fjallað er um vinnulag í ráðuneytum og hvernig rétt sé að standa að samráði og mati á áhrifum af samþykkt frumvarps. Þá er leiðbeint um uppsetningu frumvarpa, málfar og íslenska lagahefð. Handbókin er ætluð starfsfólki Stjórnarráðs Íslands og Alþingis, þingmönnum og aðstoðarfólki þeirra sem og öllum öðrum sem hafa áhuga á vandaðri lagasetningu.

Útgáfa handbókarinnar er þáttur í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um Einfaldara Ísland

Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa


Þetta vefsvæði byggir á Eplica