Málefni upplýsingasamfélagsins voru flutt frá forsætisráðuneytinu til innanríkisráðuneytisins þann 1. desember 2011. Það efni sem er hér er einnig aðgengilegt á vef innanríkisráðuneytisins. Fyrirspurnir vegna upplýsingasamfélagsins er hægt að senda á postur@irr.is.


island.is

Um Ísland.is

island.is - leiðarvísir að opinberri þjónustu

Upplýsinga- og þjónustuveitan island.is

Ísland.is er leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni.

Ísland.is er eitt meginverkefnið í Netríkinu Ísland, stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið 2008-2012. Þar segir: „Ísland.is verði netmiðstöð sem gefur yfirlit um þjónustu opinberra aðila. Þar verði á einum stað aðgengi að upplýsingum og þjónustu allra opinberra stofnana“. 

Ísland.is var þróað í forsætisráðuneytinu, vefurinn opnaði í mars 2007 og var síðan í áframhaldandi rekstri og þróun í ráðuneytinu til ársloka 2010. Þann 1. janúar 2011 fluttist þróun og rekstur verkefnisins til Þjóðskrár Íslands.

Helstu hlutverk Ísland.is

  • Upplýsinga- og þjónustuveita stjórnvalda. Þar er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu sem sett er þannig fram að notendur þurfi ekki að vita fyrirfram hver veitir þjónustuna. Hér er einnig að finna aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera.
  • Verkfærakista. Á Ísland.is hafa verið þróuð verkfæri sem nýtast öllum opinberum aðilum. Um er að ræða miðlæga auðkenningu, netskil og rafrænt þjónustulag m.a. til að auðvelda gagnasamskipti. Verkfærakistan hefur verið í notkun frá 2009 og er nýtt af mörgum stofnunum.
  • Mínar síður með einstaklingsmiðuðum aðgangi að lykilskrám í eigu hins opinberra og aðgangi að opinberri þjónustu. Mínar síður voru opnaðar vorið 2011.

Umsjón verkefnis 

Samráðshópur á vegum forsætisráðuneytis, skipaður fulltrúum ráðuneyta og sveitarfélaga tekur stefnumótandi ákvarðanir um verkefnið í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið.

Þjóðskrá Íslands, deild rafrænnar stjórnsýslu, sér um þróun og rekstur verkefnisins. Hægt er að hafa samband við Ísland.is á netfanginu island hjá island.is.