Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa
Forsætisráðuneytið, dóms- og kirkjumálaráðuneytið og skrifstofa Alþings gaf út árið 2007 handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa. Í handbókinni er fjallað er um vinnulag í ráðuneytum og hvernig rétt sé að standa að samráði og mati á áhrifum af samþykkt frumvarps. Þá er leiðbeint um uppsetningu frumvarpa, málfar og íslenska lagahefð. Handbókin er ætluð starfsfólki Stjórnarráðs Íslands og Alþingis, þingmönnum og aðstoðarfólki þeirra sem og öllum öðrum sem hafa áhuga á vandaðri lagasetningu.
Útgáfa handbókarinnar var þáttur í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um Einfaldara Ísland.

