Úr starfsreglum ríkisráðs
Texti fengin frá: http://www.althingi.is/lagasofn/126b/1943082.html
Ríkisráð skipa allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar og forseti Íslands sem jafnframt er forseti ríkisráðsins. Auk þess er ríkisráðsritari á fundum ríkisráðsins.
Forseti ákveður fundi ríkisráðs eftir tillögum forsætisráðherra og stýrir fundunum. Forseti getur einnig boðað til funda án þess að fyrir liggi tillaga frá forsætisráðherra, ef hann telur það óhjákvæmilega nauðsynlegt. Forsætisráðherra er forseti ríkisráðs í forföllum forseta.
Bera skal upp fyrir forseta í ríkisráði öll lög, þar á meðal bráðabirgðalög og mikilvægar stjórnarráðstafanir. Til mikilvægra stjórnarráðstafana skal telja:
- Lagafrumvörp, sem ráðherra vill leggja fyrir Alþingi.
- Tillögur um að kveðja saman Alþingi, slíta því, fresta fundum þess eða rjúfa það.
- Samninga við erlend ríki sem eru mikilvægir eða þurfa staðfestingar ríkisstjóra annaðhvort samkvæmt stjórnarskránni eða samkvæmt ákvæðum samningsins.
- Tillögur um veitingu á, lausn eða frávikningu frá embætti, eða flutning úr einu embætti í annað, sem forseti veitir.
- Tillögur um, að saksókn fyrir afbrot skuli falla niður, um náðun og um almenna uppgjöf saka.
- Ríkisstjóraúrskurði, tilskipanir, opin bréf og aðrar mikilvægar stjórnarráðstafanir, sem hafa ekki þegar verið taldar hér á undan.
