Í júní 2009 fól forsætisráðuneytið Félagsvísindastofnun og Hagfræðistofnun að vinna stutta stöðuskýrslu um þróun íslensks samfélags síðastliðin 20 ár. Skýrslan var í senn ákveðinn grundvöllur og leiðarljós fyrir þá vinnu sem framundan var á þeim tíma.
Lesa meiraRáðist var í gerð sviðsmynda (e. Scenario Planning) með þátttöku um 150 aðila víðs vegar úr þjóðfélaginu. Niðurstöðurnar eru settar fram í eftirfarandi vinnuhefti sem nýta má við stefnumótun stofnana og fyrirtækja.
Lesa meiraVerkefnið studdi Þjóðfund Mauraþúfunnar í Laugardalshöll þar sem 1231 þátttakandi af öllu landinu tók þátt í því að draga fram gildi, þemu og framtíðarsýn þjóðarinnar.
Lesa meiraMarkmiðið er að mótuð verði heildstæð atvinnustefna fyrir Ísland, byggð á jafnræði atvinnugreina, jafnrétti kynjanna, heilbrigðum viðskiptaháttum og grænni atvinnuuppbyggingu í samræmi við hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
Lesa meiraÍsland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélag. Þekking, sjálfbærni, velferð.
Lesa meira