Svæðaskipting
Samþætt sóknaráætlun var gerð fyrir landið sem heild en jafnframt unnar sóknaráætlanir fyrir einstök landsvæði, þar sem landinu er skipt í átta svæði. Hver landshlutaáætlun byggist á greiningu á styrkleikum og veikleikum hvers svæðis fyrir sig þar sem dregin er fram lykilhæfni svæðisins og atvinnugreina innan þess, skýr forgangsröðun og framtíðarsýn sem góð samstaða er um.
Landsvæðin eru: Vestursvæði, Vestfjarðasvæði, Norðvestursvæði, Norðaustursvæði, Austursvæði, Suðursvæði, Suðurnes og Höfuðborgarsvæði. Sameiginlegir sóknarmöguleikar svokallaðs Suðvestursvæðis (stórhöfuðborgarsvæðis, þ.e. frá Borgarbyggð í vestri til Árborgar í suðri) voru sérstaklega skoðaðir.
Til að sjá stærri útgáfu af myndinni er smellt á hana.
