Inngangur
Ágæti viðtakandi,
Í þessari skýrslu eru settar fram meginniðurstöður þeirrar miklu vinnu sem unnin hefur verið um land allt á sem hluti Sóknaráætlunar til ársins 2020. Alls hafa á annað þúsund manns komið að þessari verki, íbúar af öllu landinu, fulltrúar frjálsra félagasamtaka, atvinnulífs og vinnumarkaðar, starfsmenn ráðuneyta og stofnana, sveitarstjórnarfólk, landshlutasamtök, þingmenn og ráðherrar. Á vinnustofum sem haldnar hafa verið um allt land hefur verið fjallað um atvinnuþróun og atvinnuuppbyggingu og sóknarfæri á hverju landsvæði fyrir sig sem og fyrir landið í heild.
Þessir fundir og sjálfboðavinna fjölda fólks er til marks um þann auð sem Ísland býr yfir og á eftir að reynast drýgstur til að vinna okkur örugglega út úr kreppunni: fólkið sjálft. Úrvinnslan og meðfylgjandi tillögur fela í sér skýra framtíðarsýn, öfluga aðferðarfræði til að hrinda henni í framkvæmd ásamt tillögum um lykilverkefni til að ráðast í strax. Stefnumörkunin Ísland 2020 og tillögurnar eru meðfylgjandi í sérstöku skjali. Um þær þarf ekki að orðlengja. Þær tala sínu máli.
Dagur B. Eggertsson
Formaður stýrihóps 20/20 Sóknaráætlunar
