Stýrihópur 20/20 Sóknaráætlunar hafði yfirumsjón með öllum verkþáttum 20/20 Sóknaráætlunar. Stýrihópurinn skipaði alla verkefnishópa og aðra undirhópa, réð verkefnisstjóra, samþykkti verkáætlun og fylgdist með framgangi hennar.
Lesa meiraRáðgjafaráð var stýrihópi til ráðgjafar um skipulag og framkvæmd verkefnisins.
Lesa meiraVerkefnishópur um samþættingu áætlana var settur saman af verkefnisstjórum ýmissa áæltana ríkisins sem skipta máli til að þau markmið og verkefni sem af Sóknaráæltun leiða komist til framkvæmda. Hópnum var ætlað að samþætta þessar veigamiklu áætlanir hins opinbera í samræmi við áherslur og stefnumótun Sóknaráæltunar.
Lesa meiraVerkefnishópur um mótun atvinnustefnu átti að móta heildstæða atvinnustefnu fyrir Ísland sem tæki meðal annars til þess hvers konar efnahags- og samfélagsuppbygging hentar best og hvaða fyrirtækja- og þekkingarklasa verður lögð áhersla á að byggja upp, hvernig og hvar.
Lesa meiraStýrihópur um samkeppnishæfni átti að leggja línur um hvernig hægt er að bæta samkeppnishæfni Íslands þegar til langs tíma er litið. Skipaðir voru ábyrgðarmenn fyrir hvert svið. Hlutverk þeirra var að kalla fram álit sérfræðinga á hverju sviði fyrir sig og gera tillögur til stjórnvalda að úrbótum sem styrkja samkeppnishæfni Íslands.
Lesa meira