Viðtöl
Hér fyrir neðan er að finna tengla í viðtöl sem tekin voru upp í febrúar 2010 í tengslum við undirbúning 20/20 Sóknaráætlunar. Viðtölin voru upphaflega birt á vefnum Ísland.is en hér er vísað í þau á youtube.com.
Viðtal við Höllu Helgadóttur
11.2.2010
Framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands bendir á mikilvægi hinna svo kölluðu skapandi greina, það er hönnunar, arkitektúrs, bókmennta, kvikmynda, tónlistar, sviðslista og fleiri, sem séu algjörlega vannýttar hér á landi. Í þessum geira fari fram mikil ímyndarvinna fyrir Ísland og tiltölulega lítið fé skili sér margfalt til baka.
Viðtal við Harald Benediktsson
10.2.2010
Formaður Bændasamtaka Íslands segir íslenskan landbúnað og sveitir landsins hafa margt fram að færa í nýja sóknaráætlun. Einkum og sér í lagi þurfi að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar en jafnframt að huga rækilega að loftslags- og umhverfismálum.
Viðtal við Gylfa Arnbjörnsson
9.2.2010
Forseti ASÍ telur aldrei of seint í rassinn gripið að hefja markvissa sókn til framtíðar þótt óneitanlega hefði verið heppilegra að vinna svona verkefni þegar betur áraði. Hann vill sjá unnið í sama anda og gert var með þjóðarsáttinni um árið, þannig að sem allra flestir leggi gjörva hönd á plóg.
Viðtal við Ernu Hauksdóttur
9.2.2010
Framkvæmdstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fjölmörg sóknarfæri fólgin í sínum geira, sérstaklega utan háannatímans. Hampa verði sérstöðu landsins og ekki hvað síst að setja heilsutengda ferðaþjónustu á oddinn, þar sé eftir miklu að slægjast.
Viðtal við Hjálmar Gíslason
5.2.2010
Stofnandi og framkvæmdastjóri DataMarket vonast til að ná megi sátt um á hvaða framtíðargildum byggja eigi upp Ísland og menn komist upp úr hjólförum pólitísks stagls og átaka. Endurheimta þurfi traust bæði út á við og á milli manna. Ákvarðanataka eigi að vera gegnsæ og opin.
Viðtal við Þórólf Árnason
5.2.2010
Formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja væntir þess að með 20/20 megi brjóta niður múra og byggja upp traust. Hann minnir jafnframt á mikilvægi sprota- og hátæknifyrirtæki við uppbyggingu efnahagslífsins og sóknar til framtíðar.
Viðtal við Pál Guðjónsson
5.2.2010
Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu bindur vonir við að það takist að halda flokkapólitík utan vinnunnar við 20/20. Það sé hugur í sveitarstjórnarmönnum á svæðinu og vonandi takist að virkja alla til góðra verka.
Ráðstefnan Sóknaráætlun fyrir Ísland - Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag
3.2.2010
Upptaka af öllum erindum sem flutt voru á ráðstefnunni. Horft var til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag og kallað eftir sjónarmiðum samtaka, grasrótarhópa og hagsmunaaðila um það sem aukið gæti lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum.
Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur
3.2.2010
Menntamálaráðherra greinir frá þætti síns ráðuneytis í 20/20 og svarar spurningum um hættu á meiri miðstýringu með sóknaráætluninni og hvort ekki sé mótsögn fólgin í því að blása til sóknaráætlunar á sama tíma og mikill niðurskurður standi yfir á flestum eða öllum sviðum þjóðlífsins.
Viðtal við Dag B. Eggertsson
25.1.2010
Formaður stýrihóps 20/20 sóknaráætlunar fer yfir sviðið og greinir meðal annars frá tilgangi og markmiði verkefnisins, hverjir taka þátt í því, kostnaði við það, grundvelli svæðisskiptingar landsins og hvernig nafnið 20/20 er til komið. Tilgangur og markmið - Þátttakendur - Svæðisskipting - Afurðir og eftirfylgni - Kostnaður - Nafnið 20/20
Viðtal við Svandísi Svavarsdóttur
25.1.2010
Umhverfisráðherra segir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar endurspeglast algjörlega í 20/20. Ráðuneyti sínu og stofnunum þess sé mjög umhugað að vel takist til. Vinna þurfi af djörfung og dug til að markmið sóknaráætlunarinnar náist.
