Markmiðið með Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins er að efla endurmenntun og þjálfun starfsmanna ráðuneytanna. Skólinn tók til starfa haustið 2010 og má sjá námsskrá hans hér fyrir neðan.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem út koma 2010 var lögð áhersla á að fjölga þyrfti í þeim hópi starfsmanna Stjórnarráðsins sem eru vel menntaðir og þjálfaðir og hafa getu til að takast á við mjög flókin og krefjandi verkefni. Þá kom einnig fram í skýrslunni „Starfsskilyrði stjórnvalda“ sem kom út árið 1999 að hér á landi væri ekki starfræktur stjórnsýsluskóli fyrir starfsmenn ríkis eins og tíðkast í flestum nágrannalanda okkar.
Stjórnarráðið og umboðsmaður Alþingis efna á morgun, 1. desember, til opins fræðslufundar fyrir starfsfólk stjórnsýslunnar í tilefni af útkomu á skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010.
Námskrá Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins hefur verið birt. Nánari upplýsingar og breytingar um námskeið eru uppfærðar hér á vefnum.
Stjórnsýsluskólinn stóð að eftirtöldum námskeiðum veturinn 2010 – 2011.
Lesa meiraForsætisráðuneytið hefur falið starfshópi að skilgreina verkefni og umgjörð Stjórnsýsluskólans og móta stefnu hans og hlutverk til framtíðar.
Lesa meiraRáðherrar, aðstoðarmenn og ráðuneytisstjórar sátu námskeið í Kríunesi við Elliðavatn síðdegis í gær.
Lesa meiraRíkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um að fela Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins að skipuleggja fræðslu fyrir ráðherra og aðstoðarmenn þeirra um stjórnsýslu- og upplýsingarétt ásamt fræðslu um jafnréttismál og siðareglur.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra setti Stjórnsýsluskóla stjórnarráðsins í morgun í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Lesa meiraForsætisráðuneytið hefur ákveðið að efla endurmenntun og þjálfun starfsmanna ráðuneytanna með því að setja á fót Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins.
Lesa meira