Úrskurðir

Úrskurðir forsætisráðuneytis

Tvær úrskurðanefndir starfa undir forsætisráðuneytinu, það er úrskurðarnefnd um upplýsingamál og óbyggðanefnd. Forsetaúrskurði sem snerta mál sem falla undir forsætisráðuneytið er að finna undir flokknum Lög og reglugerðir. Upplýsingar um úrskurði hjá nefndum sem heyra undir önnur ráðuneyti er að finna á vefnum urskurdir.is.


Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er starfrækt á grundvelli V. kafla upplýsingalaga nr. 140/2012, til að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem skipað er til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga.

Valdsvið nefndarinnar nær til allrar stjórnsýslu hins opinbera án tillits til á hvaða stjórnsýslustigi ákvörðun er tekin. Aðili þarf því ekki að tæma aðrar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar áður en til hennar er leitað.

Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Þeir hafa því jafnframt fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld og stuðla þannig að auknu samræmi í framkvæmd upplýsingalaganna.

Vefur nefndarinnar: ursk.forsaetisraduneyti.is

Óbyggðanefnd

Óbyggðanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem á grundvelli III. kafla þjóðlendulaga hefur þríþætt hlutverk.

  1. Að kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda.
  2. Að skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur.
  3. Að úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna.
Sjá nánar á vef nefndarinnar: obyggdanefnd.is