Efni sem er birt hér fyrir neðan var upphaflega birt á vefnum island.is undir „Endurreisn í þágu þjóðar“ en flutt á vef forsætisráðuneytisins í janúar 2011. Dagsetning segir til um hvenær efnið var síðast uppfært.
Embætti sérstaks saksóknara og Rannsóknarnefnd Alþingis rannsaka efnahagshrunið, en ýmsir fleiri að málum svo sem efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra, fjármálaeftirlit, samkeppniseftirlit, skattrannsóknarstjóri ríkisins og aðrar eftirlits- og réttarvörslustofnanir. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar sem gætu komið að gagni við rannsókn eru hvattir til að koma þeim á framfæri.
Lesa meiraAllt frá því minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs tók við 1. febrúar 2009, hefur mikil áhersla verið lögð á margvíslegar lýðræðisumbætur sem flokkarnir sem að þeirri stjórn stóðu, og þeirri sem við tók eftir kosningarnar 25. apríl, telja að setið hafi á hakanum undanfarin ár. Ríkisstjórnin hefur því lagt fram 6 mál sem þetta varða, þeirra á meðal mál sem snerta aukin áhrif kjósenda á röð frambjóðenda á lista í kosningum, frumvarp um ráðgefandi stjórnlagaþing sem fjalla á um stjórnarskrárbreytingar, frumvarp um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur og mál er varða fjármál stjórnmálaflokka, aðgang almennings og fjölmiðla að upplýsingum og breytingar á Stjórnarráðinu.
Efnahagsáætlun stjórnvalda byggir á verkefnaskrá stjórnarflokkanna og áætlun um efnahagsstöðugleika sem unnin var í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Lesa meiraMarkmið aðgerða í atvinnumálum er að stemma stigu við auknu atvinnuleysi og stuðla að endurreisn atvinnulífsins.
Lesa meiraRáðstefna og vinnustofa um endurskipulagningu opinberrar þjónustu sem haldin var á Grand Hótel fimmtudagsmorguninn 18. febrúar 2010
Lesa meira